wanted... framsókn

 

jamm, bannað að breyta þjóðsöngnum og ungir framsóknarmenn í skammarkróknum. reyndar ekki í fyrsta sinn.

bannað að klæðast og bannað að breyta fánanum, eða bara fara illa með´ann. ogvodafone og doctor spock í skammarkróknum. ekki í fyrsta sinn.

ég sá wanted í gærkvöldi. hún er fín. þrátt fyrir að vera pínu óraunveruleg. óraunveruleg í byrjun, óraunveruleg í endann og óraunveruleg þar á milli. en fín.

hressandi kvekendi, kúlur sem beygja og vefstóll sem ræður öllu. jamm, og bílaatriðin töff.

en óraunveruleg.

angelina-jolie-wanted-movie-poster angelina jolie, morgan freeman og eilífðartöffarinn terence stamp. þessi hér í aðalhlutverkinu þó. sjáðana bara.

 

græddi bigtæm í gær. svefnpoka og sokka. köku og teygjubyssu. gjafakort í kringluna og lakkrískonfekt. nýja diskinn með rem og bol. og annan bol og tertu.

svo fæ ég í glös...

 

sirius bók annars var ég með smá fyrirlestur í morgun um sirius herdeildina dönsku á grænlandi. heimildir í sunnudagsblaði moggans og í þessari bók þarna --

 

fjallaði líka um ísbirni. heimildir voru úr bókinni minni "grönlands hvide björne" eftir erik w. born og hérna. takk kolgrímur...

byrjaði samt á því að lesa þetta_hérna upp afþví að það er fyndið. takk anna...


afi pönk

 

í tilefni af þessari_færslu hjá maackaranum, þá kom upp í haus minning.

var á hlemmi fyrir haug af árum síðan.

tólf, þrettán ára dúd var þar í jakkafötum og strokinn og bónaður.

vinur hans í leðurjakka með nælum og öllum pakkanum segir:

"hva er edda siggi, ertu hættur að vera pönkari"???

nei, ég er ekkert hættur að vera pönkari. ég er bara að fara í heimsókn til afa.....


TOYOTA RAV OG MEGAS XLR...

 

MEGAS...


hugur reikar um víðan völl, trissur, hóla og heima

 

já, takk fyrir. takk fyrir..... það er sko ekki stærsta vandamálið að hafa hemil á. bókstaflega ekkert mál bara...

KrabbiKrabbi: Þú þarfnast tíma og rúms bara fyrir sjálfan þig. Því er betra ef þú getur haft hemil á stefnumótunum þínum. Gefðu sjálfum þér tíma til að láta hugann reika.

en læt oft hugann reika. út um allar trissur. það er heldur ekki vandamál.

 

en hann úlli á afmæli í dag. úlli múrari frændi minn. og vinur.

til hamingju ólafur önd. og af tillitssemi verður aldur ekki gefinn upp.

en hann er harður KA maður og Leedsari, eins og ég.


Virkilega Sirius - patrol... naglar naglar naglar

Árið 1950 ákvað danska stjórnin að koma á fót herdeild sem hefði aðsetur á Norðaustur Grænlandi. Hundasleðaherdeild. Þrátt fyrir að stöðu kalda stríðsins á þessum tíma, var þessari framkvæmd haldið leyndri fyrst um sinn, top secret alveg. Og gekk undir nafninu, eða eins og sagt er: Code name “operation Resolut”. 

 

Leyndinni var aflétt 1953 og fékk herdeildin nafnið “Sirius” og er enn starfandi, eins og kemur fram vegna fréttarinnar hér um klæðnaðinn frá 66°norður. Og enn þann dag í dag er verkefnið það sama, að halda dönskum yfirráðum, og passa uppá hið óbyggða land allt frá Scoresbysundi  á 70. breiddargráðu á austurströndinni, upp lengjuna og yfir norðurströndina og allt að Thule, nyrst á vesturströndinni. Þetta eru fáránlegar vegalengdir við óbyggða strandlengju, og það eru sko alveg ástæður fyrir því að hún er óbyggð. Nánast við enda alheimsins og sjálfur hef ég verið í Scoresbysundinu en ekki farið norðar. og ekkert viss um að mig langi til þess, þannig. Allavega ekki til að búa þar.

  

greenlandSirius heldur einnig úti starfi sem nokkurskonar lögregla í þjóðgarðinum grænlenska, sem er á Norðaustur Grænlandi. Hann er stór. Tæplega milljón ferkílómetrar, svona kannski átta sinnum stærri en Ísland og hefur oft verið miðaður við að vera töluvert stærri en Stóra Bretland og Frakkland til samans. Þetta er stórt svæði fyrir tólf manna lögreglulið, sem þar að auki gætir strandlengjunnar og ferðast um á hundasleðum. Þjóðgarðurinn var þó ekki alveg svona stór í byrjun, en stækkaður töluvert 1988 og þangað fær enginn að fara án leyfis. Og þó hann sé nánast algjörlega ísi lagður, eru dýr og allur gróður þar friðuð. Fínt að vera moskuxi þar, þ.e.a.s. ef það er eitthvert æti....

  

Sirius deildin er algjört einsdæmi í heiminum. Eina hundasleðaherdeildin og starfar í umhverfi sem er hrikalegt, um leið ótrúlega fallegt en einnig gríðarlega erfitt við að eiga. Ekki þarf að taka fram að kuldinn þarna getur orðið yfirgengilegur og færðin út í hött. Stormar og einfaldlega algjör geggjun, enda enga hjálp að fá nema á einhverra mánaða fresti. 

Hérna_má_til_dæmis_sjá_grein um þá í Sirius á netinu en nóg er um upplýsingar þar sosem.... Þessir gæjar eru naglar. Þvílíkir djössins naglar. Þekki einn, Martin í Ittoqqortoormiit, bænum við Scoresbysund. Nyrsta byggða ból austurstrandarinnar þar sem átta hundruð kílómetrar eru í næsta bæ sem er Kulusuk. Og engir eru vegirnir. Styttra á Þingeyri.

Hann er þarna með túristabúðina ásamt konu sinni og já einmitt, fer með ferðalanga í hundasleðaferðir á ísbjarnaslóðir.

  Það eru aldrei meir en tólf menn í deildinni á sama tíma og allir hafa þeir sín verkefni. Enda ekki alveg þannig að danir séu æstir yfirleitt í að sækja um þarna. Vikur og jafnvel mánuði að berjast á hundasleðum í biluðu veðri og svo kallt að AEG frystiskáparnir eru eins og gufubað barasta...

Á þessum árum hafa þeir ferðast, og ekki ferðast þeir þó hratt yfir, um 800.000 km á hundasleðunum sínum, sem er svona tuttugu sinnum í kringum jörðina eða þar um bil.

  

Auðvitað hefur tæknin batnað á fimmtíu árum, komnar einhverja gervihnattagræjur og svona, en þetta hefur þó lítið breyst, tveir sameinast um einn sleða og ellefu hunda og á sleðanum er það sem til þarf að lifa af eitt stykki vetur á norðurpólnum. Jebbs, ekkert gourmet fæði og ekki skipt um brók á hverjum degi sko.

  

sirius bókÉg á semsagt bók um Sirius, “One Thousand Days with Sirius – The Greenland Sledge Patrol” eftir Peter Schmidt Mikkelsen. Hef ekki lesið hana enn en aðeins gluggað smá, þarna eru myndir og svona og útlistanir á hinum ýmsu hlutum. Þetta hljómar spennandi en ég mun ekki fyrir mitt litla líf rembast við að sækja þarna um, þó það væri svosem gaman að fara í nokkurra vikna ferð yfir ísinn. Með vönum mönnum og nóg af hlýjum fötum, kannski frá 66°norður og fleirum, og haug af mat.

  En eins og ég sagði þá hafa allir sitt hlutverk. The Chief er yfirmaðurinn og heldur utan um ferðina. Hann er algjörlega kapteinninn og stjórnar, en hefur þó nákvæmlega sömu vinnuskyldur og allir aðrir og þarf þessvegna að vera frekar töff týpa. sirius hundar

 The dog man sér alfarið um hundana. Þó ekki alfarið þar sem þeir sem stjórna hverjum sleða gefa sínum hundum, en hann passar uppá birgðir og skammtar þær, auk þess að sjá um lyfjamál ef hundarnir eru veikir og passa að þeir séu í góðum gír.

Ég veit það sko að það er vissara að hafa þessar skepnur þokkalega ánægðar, því þetta eru engir kjölturakkar. Sofa úti allt árið og líka þarna. Koma aldrei inn í hús, í þessu tilfelli tjald, og þegar það er stormur og 40°frost þá er það bæra að væla eða grafa sig í fönn....

  

The syndicate man er handlagni heimilisfaðirinn í hópnum. Sér um allt viðhald og er með þau tæki og tól sem hægt er að taka með. Og djí... ekki vildi ég vera hann þegar sleðar brotna og þarf að koma upp búðum og slíku. Enda ömurlegur iðnaðarmaður.

  The machine man. Vélvirkinn sem heldur því gangandi sem gengur fyrir olíu. Fyrir ýmsu að sjá þegar skellt er upp stöðvum sem þarf að dveljast í annað slagið. Stundum þarf að hita gallerýið. 

The sparky, sá sem sér um öll rafmagnstæki og passar að samskipti við umheiminn séu möguleg. Radio og senditæki og græjur til að elda mat, svona til dæmis. 

 

The osmosis man. Sér um vatnsbirgðir sumar sem vetur. Passar að allir tankar séu fullir og kann sko alveg að bræða snjó. Það er ekkert smá sem þessir gaurar þurfa að hafa með sér og eins og sagði sameinast tveir um einn sleða og ellefu hunda. Og já, þetta eru sko sterkir hundar. Sennilega um og yfir hálft tonn hver sleði.

  

The provisions man. Sá sem heldur utan um matarbirgðir  og kokkar í liðið. Reynir sitt besta og á það til að reiða fram dýrindis steikur með bearnes og svona, en það er sko til tilbreytingar. Matseðillinn fremur fábreyttur.

 The stop chest man sér um fatnað og þannig varning. Passar sko vel uppá, enda birgðir naumt skammtaðar. Þú færð ekki nýja sokka þó það komi gat. Þú bara stoppar í takk fyrir.Svo er það The nordre man sem er hjálparkokkur og passar upp á hitt og þetta, græjur sem tilheyra eldamennsku og passar að öll smáatriði séu á hreinu í sambandi við hvern sleða.

The boat man hefur ábyrgð á öllum farartækjum, sleðum og svo smábátum sem þarf að hafa með og nota við strendur. 

dönsk byssa Og svo að endingu er það The Fire Master sem passar uppá skotvopn og allt sem því tilheyrir, sem er ekkert lítið því þetta er jú herdeild.

Ekkert svona Marine dæmi, en herdeild samt og við gerum ekkert lítið úr því sem þeir leggja á sig, þessir dúddar, fyrir dönsku krúnuna.

En_hér_er_pínu_lesning fyrir Ingvar_bróðurómynd  sem er byssuóður. og fróður... um byssur en annars rugludallur....   


mbl.is Danskir hermenn í fatnaði frá 66°Norður á Grænlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

litlar tjellur

 

það er lag í útvarpinu og textinn er svona:

 

ég vil litlar konur

ég kann að meta þær

ég vil litlar konur

minni í dag en í gær....

 

magnús eiríksson, jebbs.

ég vil líka litlar konur, enda passa þær stóru illa við strákinn sem er ekki alveg körfuboltatýpan.´

 

bíð bara eftir að freyr eyjólfs haldi áfram og spili "ung, gröð og rík með fullt af seðlum"...

 

áfram freyr, bíð eftir næstu lögum.


lög og reglur fyrir leikinn. muna það...

 

jamm, áður en við förum aðeins yfir fótboltareglurnar úr hinni ótrúlega fínu bók, "knattspyrnulög íþróttasambands íslands - með lagaskýringum, frá árinu 1928, svona í tilefni úrslitaleiksins, þá langar mig að segja þér það að hún amma mín, anna þorsteinsdóttir, hefði orðið 99 ára í dag, hefði hún lifað semsagt. sem er slatti.

en 15. grein hljóðar svona:

Ef sveitarforingja finst dómarinn misbeita valdi sínu, skal hann mótmæla því þegar á leikvelli. Taki dómarinn það eigi til greina, getur sveitarforingi, eða félag hans, kært það fyrir hlutaðeigandi knattspyrnu- eða íþróttaráði. Skulu slíkar kærur sendar ráðinu innan tveggja daga. Fylgja skal hverri kæru 10 kr; verða þeir peningar endurgoldnir, reynist kæran rétt (sbr. Hegningarbálk Í.S.Í., 6. gr.).

jamm, það er nebblega það... en svo dómarinn ruglist nú ekki í ríminu, þá eru sko skrifaðar reglur til um klæðaburð leikmanna. 12. grein já:

Hver sveit skal hafa sérstakan, samlitan búning. dómari má reka hvern þann leikmann af leikvelli, er ekki fylgir þessu ákvæði. Séu búningar tveggja sveita svo líkar, að dómara veitist örðugt að greina á milli, skal það félag, er á fyrir leik að ráða, breyta um búning. Sé nú félag það, sem á fyrir leik að ráða, ekki í leiknum, en aðgeina þarf búninginn, skal það félag, sem framar er í stafrófsröð, breyta um búning. Markvörður skal þó vera í sérstökum búningi. (Markvörður á alltaf að klæða sig eftir veðurfari).

 

jebbs, markvörður á alltaf að klæða sig eftir veðurfari og það er alltaf rigning þarna í austurríki og sviss....


dauðakossar valgerðar

 

nú, lufsaðist auðvitað í laugardalinn og vonlenskan hljómaði þegar ég trítlaði inn. haugur af fólki. sumir fullir, flestir þó ekki.

björkvar ógeðslega ofarlega en samt fyrir miðju sko. færði mig neðar þegar björk var búin með nokkur lög. stóð hjá karli hennar, móður og dóttur. fannst það svolítið merkilegt en svo fattaði ég að það var auðvitað ekkert merkilegt. fólk alveg eins og ég.

bara frægara.

og ríkara.

ekkert hugmyndaríkara þannig, en þau koma hugmyndum sínum í framkvæmd, ekki ég.

og eiga haug af pening. ekki ég...

mér fannst björk bara drullugóð og flottir tónleikar. svo fannst mér líka gaman að sjá trailerinn af framtíðarlandinu sem Þorfinnur Guðna gerði eftir bókinni hans andra snæs.

flott, nú eða eiginlega samt ömurlegt, bara flott gert, að sjá þegar öndin er að reyna að bjarga hálfútklöktum eggjunum þegar vatnið hækkar skuggalega hratt. svo er klippt og valgerður að kyssa einhverja útlenska dúdda við undirritun samninga. svo er klippt og ungarnir drukkna áður en þeir komast allir úr eggjunum og öndin alveg í lamaslysi. svo er klippt aftur og geir haarde og einhverjir dúddar mynda eitthvert harmonikkuhandaband, þvílíkt kátir með þetta.

jebbs, hvað ætli við græðum nú á þessu á endanum.

og nú væla bankastjórarnir, sem eru búnir að drulla upp á bak, um að virkja meira svo þeir fái pening.

einmitt, virkja bara þjórsá og goðafoss og svona. sýna útlendingunum það. hrikaleg fegurð þegar landið er eitt uppistöðulón með glimrandi fallegum orkuverum hist og her.

og allir borga með dollurum ef geir haarde fær að ráða því það verður gjaldmiðillinn hér.

djöfullin er þetta, eru allir orðnir spinnegal? nema ég auðvitað....


honum langar til selfossar held ég barasta. og mér líka.....

 

var að vafra á visi.is. djöfull getur þetta lið verið bjagað maður:

Jafntefli varð niðurstaðan í báðum leikjum 1. deildarinnar í dag. Víkingur Ólafsvík og Fjarðabyggð gerðu markalaust jafntefli og þá varð 1-1 niðurstaðan í leik KS/Leifturs og Selfossar.

einmitt, niðurstaðan í leik selfossar..

 

og svo þetta líka:

Býður upp líf sitt á eBay

Ian Usher hefur boðið upp líf sitt á eBay.

SB skrifar:

Eftir misheppnað hjónaband langar Ástralanum Ian Usher að byrja upp á nýtt. Hann hefur sett líf sitt á uppboð á Ebay.

Þeir sem vilja lifa lífi Ian Usher geta nú boðið í það á Ebay. Á heimasíðu Ian getur maður séð myndir af íbúðinni hans, bílnum og upplýsingar um vinnuna hans.

langar honum ástralanum já.... honum langar rosalega. sjitt, hvað mér leiðist svona. SB er illa skrifandi, greyið...

og ég bara rétt lufsaðist í gegnum nokkur helstu atriði þarna hjá vísi sko.

annars ætlaði ég ekkert að skrifa um þetta heldur allt annað. geri það næst.


GLACIER FLAME

 

jökull logi arnarsson er sexdown ára í dag jebbs. eyddi afmælisdeginum við afgreiðslu í júróprís á selfossi. er að safna pening því hann er að fara til krítar.

 til hamingju barn. alveg hjartanlega sko.

annars var ég að koma af ströndum. hátíð í djúpavík og í trékyllisvík. kíkti í kistuvog og kolgrafarvík, sund og kaffi í norðurfirði og ég veit ekki hvað. ótrúlega fallegur staður en pínu langt i burtu sko. tefldi á tveimur mótum og stóð mig bara vel miðað við það að ég er lélegur. eins og sumir segja: flóðhestur.

fór með skólastjóranum í ittoqqortoormitt honum peter og þessum_hérna_líka en þetta er nagli.

hrafn jökuls stýrði og gerði það bara býsna vel, myndlistarsýning, gítarspil, einn eða tveir öl... tvö skákmót, karlakór söng fyrir viðstadda og sólin skein á liðið.

farkíng frábært bara. miklu_meira_hér_um_málið


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband