Tóti Tót

 

hef alltaf svolítið gaman af því að lesa pistlana hans tóta.

þú mátt engum segja hér á mbl.is þvi tóti er ritstjóri dv.is og skrifaði margann mæðulegan pistilinn í fréttablaðið hér um árið.

svo ritstýrði hann mannlífi en HÉRNA talar hann um duran duran og fyrrum tjellingu, plötuspilara og fyrrum magnara og þar á undan um denny crane og nautakjöt.

værsogod.


Top dösin - loxins

 

þann tíunda mai setti ég inn nokkrar uppáhaldsplötur. ætlaði sko að setja topp tíu en þær urðu svo margar að ég náði með naumindum að skera í tuttuguogsex. fjórtán á þeim lista en hér kemur top dösin semsagt lox.

flestar eru þarna vegna þess að þær eru viðbjóðslega góðar en aðrar vegna persónulegs gildis eins og maður segir og þess vegna uppáhalds sko.

röðin ekkert endilega akkúrat rétt enda erfitt að segja hver er bestust af þeim bestustu ha...

talk talkTalk Talk. it´s my life. Tvítugsafmælið mitt dróst á langinn því kristján og svenni voru með headfón í marga tíma og fíluðu sig. Fórum samt í sjallan og sáum: Dave dee, Dozy, Beaky, Mick and Titch. Held að Titch hafi verið með en ekki viss. áfengi haft um hönd og mörg ár síðan. eða allavega nokkur. Þokkaleg grúppa í tvítugsafmæli ha?

 

gary numan ThePleasurePrinciple1 Gary Numan, Pleasure Principle. Frá fermingu til tvítugs komst fátt annað að. Geðveikt smeðveikt. "here in my car, i feel safest of all, i can look all my doors".....

 

bubbiBubbi, Ísbjarnarblús. Bubbi ber að ofan og ég man eftir sukkinu á þessum dúdum. vil ekki segja sögurnar því allir fara í mál á þessum síðustu sko. En þetta voru pönk og ról ár. Þó margt hafi verið í gangi, Þeyr og hitt og þetta þá var þetta tímamótaverk. jamm, algjört. Jón pönkari sem hangir fyrir altari og slagsmál, ríðingar, fyllerí á meðan Jack London horfir barasta á klabbið.

 

alladin sane David Bowie. Alladin Sane eða A lad in sane... Auður barnsmóðir og þáverandi sambýliskona gaf mér og held alltaf uppá plötuna sem reyndar er diskur. Lady grinning soul er með betri lögum heims. ekkert annað sko. Svo hlustaði maður haug á Low, Scary Monsters, Heroes og allt jukkið bara.

 

grace under pressureRush, Grace under Pressure. Djöfull hlustaði maður á þetta á rúntinum með téi á Akureyri. Grace under Pressure og Signals. Skapti kynnti mig fyrir Rush, ég kynnti Ingvar fyrir Rush og hann hefur ekki borið þess bætur. og mun aldrei.

 

heaven_and_hell_front_big Black Sabbath, Heaven and Hell. Lagið heaven and hell bara settist að í heilanum mínum í marga mánuði og átti þar heima. Grundarfjörður fyrir löngu, verbúðarlíf og rokk og ról. og landi....

 

pink-floyd-the-wall-poster-c10289248Pink Floyd, The Wall. Var lengi að taka við Pink Floyd en tók þeim fagnandi þegar þeir náðu mér. Svo var ég auðvitað á tónleikunum með Roger Waters og Scorpions og öllu liðinu við Brandenburgerhliðið í Berlín, ágúst 1990. Seldust held ég 180.000 miðar en hliðið brotið niður og 220 þúsund snarklikkuð kvekendi á svæðinu. sjitt, upplifun.

 

uriah-heep-demons-and-wizards Uriah Heep, Demonds and Wizards. Jamm, maður tók sko Heep árin nokkur. átti haug af plötum með þeim en ekki lengur. Þessi held ég best þó ekki væri nema fyrir The Wizard. Margir sem skilja af hverju. snilld.

 

beegeesBeeGees, Greatest hits. bara vegna þess að Úlli og Árni frændur mínir gáfu mér þegar ég var tólf eða eitthvað. Fyrsta platan sem ég eignaðist fyrir utan eitthvað barnastöff. Gáfu mér reyndar Andy Gibb en ég skipti í þessa vegna "nights on Broadway". Var húkkt á þessum dúdum lengi. Gerðu margt svakagott áður en þeir urðu vibbafrægir.

tangerine dream underwater sunlight Tangerine Dream, Underwater Sunlight. Keypti hana ´86 þegar ég leigði í breiðholti. Borgaði 17 þúsundkall í leigu og var með 23 þús á mánuði í Hampiðjunni. Það var ekki lúxuslífið á manni þá. En að hlusta á góða tónlist er góð skemmtun. Svo fattaði ég gott ráð því ég átti ekki fyrir mat. Keypti bara campariflösku og fékk mér einn hressandi. Varð ekki svangur fyrr en næsta dag. þá fékk maður sér bara camparíglas og...... Þessi plata er rafræn symphonía. bjútífúl. Og svo er þetta flottasta plötunafn ever.

baraflokkurinnBaraflokkurinn, Baraflokkurinn. Fyrst platan bara best. 45 snúninga dæmi og lagið Fog. Eftir Balla bassa. Hann spilaði þetta einu sinni á skemmtarann minn sem enn er lifandi og býr á Stokkseyri. Það er skemmtarinn. Held að Balli sé í borginni bara.  fann ekki mynd en þeir voru í þessari mynd sko. algjörlega.

acdcbackinblackAC/DC, Back in Black. Hells bells, back in black, you shook me all night long.. yeeeahh. þarf að fara nánar út í það eða?

 

 

 

Ozzy, Numan, Megas, Tom Waits, Japan, Dylan, Propoganda, tangerine Dream, Neil Young, Jethro Tull, Blue Öyster Cult, Iron Maiden, Kraftwerk og Ham áttu plötur 13-26.


Helmuth von Bráðar

 

"Ég er í magnaðri 7 manna hljómsveit sem heitir Blues Willis, sem samanstendur af mér og 6 fleirum. Við spilum aðalega Contry en þó er allt opið. í hljómsveitinni er m.a Piano, Trommur, Bassi, Gítarar, Banjo og flreiri skemmtileg tónfæri. Fyrsta platan okkar, Hang Em High kemur vonandi út von bráðar, en á henni eru 14 vel samin og flutt lög sem öll eru frumsamin sem og textar. Á æfingum er mikið trallað og tjúttað, drukkið, slegist og drepist".

 

jens gud var að minnast á þennan dúd í færslu og ég kíkti. www.siggileelewis.blog.is

fannst þetta góð setning. þarf að lufsast í hljómsveit. sjitt.


einn gamall...

 

...en samt fyndinn. fúinndin..

langur kálfur en lestann. um þegar evrópa ákvað að enska yrði aðaltungumálið.

með smávægilegum breytingum þó...

The Europian union commissioners have announced that agreements have been reached to adopt English as the preferred language for European communications, rather than German, which was the other possibiltily.

As part of the negotiations, her Majesty´s Goverment conceded that English spelling had some room for improvemet, and has accepted a five year phase-in plan for what will be known as EuroEnglish.

In the first year "s" will be used instead of the soft "c". Sertainly, sivil servants will reseive this news with joy. Also, the hard "c" will be replaced with "k". Not only will this klear up konfusion, but typewriters kan have one less letter.

There will be growing publik enthusiasm in the sekond year, when the troublesome "ph" will be replaced by "f". This will make words like fotograf 20  persent shorter.

In the third year publik akseptanse of the new spelling kan be expekted to reach the stage where more komplikated changes are possible. Goverments will enkourage the removal of double letters, which have always been a deterent to akurate speling.

Also, al wil agre that the horible mes of the silent "e" in the languag is disgrasful and it would go.

By the fourth yar, peopl wil be reseptiv to steps such as replasing "th" with "z" and "w" with "v". During ze fifz yar, ze unesesary "o" kan be dropd from vords kontaining "ou" and similar changes vuld of kors be aplid to ozer kombinations of leters.

After zis fifz yar, ve vil hav a reli sensibl riten styl. Zer vil be no mor trubls or difikultis and evrifin vil find it ezi tu undrstand ech ozer.

Ze drem vil finali kom tru! Ze Reich - ops- United Europ, vil last tausend yirs. Yavol!

 

 

 

 

sjitt hvað ég er duglegur að skrifa. sjitturinn barasta.

 


james bond og aðrar syngjandi tjellingar

 

birtist í lesbókinni fyrir löngu löngu síðan. eftir bárð stein róbertsson sem sendi nokkur góð, það árið.

Konur

Fátt um sál ég segja vil

sál er jafnvel engin til

Satt má hinu segja frá

sem við getum þreifað á

 

annars fór ég í bíó með vinnufélögum. mamma mia sko. james bond söng og dansaði.

fjórir strákar í bíó og hundraðogfimmtíu tjellingar.

þær fóru dansandi út.


BÓNUSBANDIÐ

 

Var í Bónunsbandinu ´86 - ´87.

Spiluðum á böllum á Flateyri. Allavega tveim. Ég á Roland juno hljómborðinu. Með hvítt bindi og alles. Allavega á áramótaballinu.

Jói á bassa, Emil á trommur, Henrik Wallgren söng og Próffi á gítar. hann er orðinn tölvuséni. Vorum frægir um allan Önundarfjörð...

Var að taka til og fann lagalistann.

Blue

Money for nothing

Vals 1

In the army

I just called

Diana

Have you ever seen the rain

Don´t let me be misunderstood

We are the world

Svo var eitthvað sem heitir heart of the world sem ég man ekkert hvað var.

Dream, Það blanda allir landa og Stjúpi voru þarna líka... óli píka.

 

búinn að selja júnóinn. og kassagítarinn. og gibson sg, fjólubláa alveg eins og angus young á. fann samt munnhörpu oní skúffu þegar ég var að taka til. og blokkflautuna mína.

gæti ekki einu sinni spilað lag á lírukassa. sjitturinn og titturinn.


settu öryggið á hausinn

 

fékk -inní blaði- nýjan bt bækling (og svo líka intersport og rúmfatalagerinn o.s.videre).

sá þennan rosalega reiðhjólahjálm á 5999 kr með 25% afslætti.

flottur. og ég las:

Logitech VX revolution

þessi er geggjuð - þráðlaus snilldarmús sem þú átt eftir að falla fyrir.

(Vörunr.150880)

 

 

sjitt. það er allt orðið eins...


rapid eye movement

 

þið sem misstuð af þáttunum þarna..... seven ages of rock, sjitt, minnir að þeir hafi heitið það, sem voru í imbanum um daginn, ættuð að skammast ykkar.

í beinu framhaldi, nú eða á ská, þá er hér intró á plötu mánaðarins.

ég sá þætti þrjú og fjögur og fimm og sex og sjö en semsagt ekki fyrstu tvo.

no3: genesis, roxy music og listanemagáfumannafílingur og leikhúsið komið í tónlistina. nú, og bowie auðvitað.

no 4: pönkið. sex pistols og svo clash og stuð og læti. gefið skít. jamm, skítt með kerfið sko.

no5: rokkogról. ozzy, mötley crew, black sabbath, deep purple og nostalgían alveg lak af manni.

no: 6: stage rock. þegar liðið fór að græða farkíng big tæm. ekkert í smásölum heldur 150 þús kvekendi að borga haug og kaupa boli. queen, led zeppelin, police og fleiri.

accelerateno 7: seattle grungið. rem, nirvana og svoleiðis lið. áhugavert hvernig þolinmæði þrautir vinnur allar. nema kannski hjá honum kurt. varanleg lausn á tímabundnu vandamáli sko.

no 8: ... númer átta! sjitturinn er ég að ruglast. voru þeir ekki bara sjö. allavega var síðasti með indípoppinu breska. farkíng leiðinlegu oasis og svo the smiths og suede og stone roses og svona. og hann þarna pete dogherty dúd...

en: REM. þeir voru góðir og maður lærði mikið um þetta lið. átti bara eina plötu með þeim, monster. þangað til á þriðjudaginn. eignaðist þá accelerate. glæný og drullufín. ekkert helvítis væl, bara rokkogról.

ellefu lög og það er sko ekkert flóuð mjólk.

mæli með því að þú eignist hana sem fyrst og skrúfir upp í draslinu.


the invasion of the evil memento´s með bearnessósu

 

félagi mummi  bauð í mat í gær. maður afþakkar ekki svoleiðis þar sem maðurinn er kokkur.

nú og gamall vinur þar að auki. nautasteik og meððí. rauðvín og romm.

ætluðum þvílíkt að rokka en maður var svo bilað saddur að rokkið breyttist í dvd. þrjár myndir takk fyrir, þrjár.

evilDeadUltimateevil dead var fyrst. tæknibrellurnar ekki alveg að hala inn óskara enda töluvert við aldur greyið. sam raimi við stjórnvölinn og er hann ekki enn að, eða hvað?

axir, blóð og exorcist fílingur. fílaða....

 

svo invasion. gerð eftir sögunni "invasion of the body snatchers". smá alien fílingur. minnti mig í byrjun á "i am legend" með will smith. byrjaði semsagt á svona flensufaraldri en munurinn á myndunum er að það gerðist hellingur í þessari, fínir leikarar og svona en í "legend" gerðist ekki baun og veruleg vonbrigði.

the-invasion-poster-425 hún er líka sæt hún nicole kidman og þrusuleikkona. best þegar hún leikur druslur og vondar tjellingar. hér er hún sosum ekki vond. bara góð. og sæt....

 

memento_ver2memento með guy pearce og trinity matrix gellu. það hafa nú flestir séð þessa afturábak ræmu enda kom hún út tvöþúsund. flott saga og þýðir ekkert að horfa á hana með öðru auganu sko. ef þú hefur ekki séðana þá er kominn tími.

ánægður með þrjár myndir í röð. óánægður hvað ég var lélegur í drykkjunni. skandall.


skrapp út með diddu

 

í þessari var ég pínu með. fullur kall og sofandi kall og svona. en sagði samt setningu. eða tvær.

kæmi ekki á óvart þó þær hafi verið klipptar út...

verð ekki á imdb.com.

sjitt.

 

en óttarr átti nokkrar. gulls ígildi.

 

gaman samt. missi af frumsýningu. Ammassalik...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband