flug og bíll

 

jamm, þá er fyrri vika sumarfrís número uno að klárast.

en ég er að fara þessa_útálandi´hátíð  og bíð eftir að peter von staffeldt og paulus napatoq komist lox frá scoresbysundi, en þyrlan bilaði og endalaust vesen. áttu að koma á miðvikudag en koma í kvöld. verður vísast hugguleg helgi.

annars er atli yngri stúfur að fara til kanada með vini sínum. jebbs, nú á eftir og bara spenntur.

enda tólf. þeir báðir, gísli og atli. tólf ára að fara til kanada..... er ekki allt í lagi með foreldra þessara pilta????????????????????

jökull eldri stúfur er að fara til grikklands í næstu viku með vinkonu sinni. verður sextán á mánudag og fer bara til grikklands með vinkonu sinni!

djísössss hvað er að gerast. hef ég misst af einhverjur? finnst ég hafi verið að skipta um bleyju á þessu liði bara í þarsíðustu viku.


niður brekkur fer trallalala

 

STELESSU_ÓHIKAÐ af eyjunnipunkturis.

bláfjöll my ass. hrikalega truflað og bilað. vildi óska að ég þyrði. sem ég geri ekki. þorir þú?

held ekki.


rafael og spæjarinn

 

þetta er nú eiginlega dáldið fyndið. hinir knáu hollendingar sem hafa verið að rúlla upp e.m. og allir þeir bestu á bekknum. þarna á móti rúmenum sko.

sá þetta á mbl en þeir stálu þessu HÉRNA-FRÁ_BBC auðvitað 

sýnist rafael vera sekur. en hvað fékk hann sér að borða strákgormurinn??? baunir, örugglega baunir....


með tjald og veiðistöng... í skagafirði

 

ég spyr:

hvernig gengur að selja veiðileyfi í skagafirði?

er eitthvað af fólki að trilla á fjöll í skagafirði?

þorir einhver að tjalda út í sveit í skagafirði?

 

jebbs, bráðum verða fleiri ísbirnir þar en hestar. sjitt maður.


bebe buell og beib austria

 

Bandaríska leikkonan Liv Tyler segir móður sína alls ekki hafa verið grúppíu þrátt fyrir að hún hafi átt vingott við rokkarana Steve Tyler, Todd Rundgren, Mick Jagger, Iggy Pop, David Bowie og Elvis Costello.   

Liv segir móður sína Bebe Buell hafa gefið sér mjög góð ráð í ástarmálum en sjálf er Liv skilin við eiginmann sinn tónlistarmanninn Royston Langdon.

þetta sá ég á mbl.is undir fyrirsögninni "ekki grúppíubarn".. sem ég þurfti auðvitað að klikka á sko.

je- right....... einmitt og barasta.

 

 segi nú bara eins og oddvar nielsen, félagi minn í noregi: kvinnfolk, menneskets bedste ven.

 

en SVONA-LAGAР líst mér ótrúlega vel á og óska þess að svo fallegur siður verði upptekinn á íslandi. helst lögleiddur. kommon, við erum nú að tala um íþróttir og þeir sem ekki nenna að taka þátt myndu flykkjast á vellina. ekki nokkur farkíng kvestjón.


dráttur í lottói, dráttur á skilum, dráttur á bílum og dráttur á dauðadrukknum tj...

 

algengasti fæðingardagur íslendinga er 28. apríl en þá eiga 964 afmæli. þetta er samkvæmt upplýsingum frá hagstofu íslands og var í fréttablaðinu um daginn.

eins og ég vissi:

VERSLUNARMANNAHELGARDRÁTTURINN.


RUSTICUS ES, KORYDON

 

 

atli stúfur, sá yngri, hefur semsagt verið í háskóla íslands að læra tölvuverkfræði, umhverfisverkfræði, afbrotafræði og latínu.

útskrifaðist í gær og montinn.

rusticus es, Korydon er semsagt beint til þeirra sem ekki eru fæddir í borginni. nú, eða búa ekki þar.

ingveldur, lebowski, marino, jökull, lilja, meistarinn, snorri og þið sennilega bara öll eruð einmitt rusticus es, Korydon....

 

 

 

 

 

 

þú ert sveitalubbi.........


sumir eru sjaldan ellidauðir

 

"Vinstri umferð á sér mjög langa sögu. Þegar vopnaðir menn mættust, gangandi eða ríðandi, var tryggast að hafa höndina sem sverðinu brá sömu megin og sá var, sem á móti kom. Örvhentir riddarar urðu sjaldan ellidauðir".

Örvhentir riddarar urðu sjaldan ellidauðir.

Heyrið þið það, Ingveldur, Jökull og annað rangsnúið fólk. Heppin að vera fædd seint á tuttugustu öldinni sko.

 

 

 

Þetta var í fréttablaðinu um daginn. smá klausa um vinstri-hægri-snú daginn. hægri umferð var tekin upp i danmörku í lok 18. aldar.

og breyttist úr vinstri í hægri í frakklandi eftir stjórnarbyltinguna 1789.

jamm, og ýmislegt annað sko.


pretty in pink

 

gúgglaði sjálfan mig og þar var þessi mynd einmitt undir arnar valgeirsson.

veit sosum afhverju.

einmitt, þetta er svo mikið ég sko. svo mikið ég...

arnar pink


lilja og coverdale, töffarar

 

whitesnake2wið winir og feðgar fórum á whitesnake í kvöld. jökull með frænda sínum, atli með mér. það var þokkalegt stuð og fjör, gítarsóló í mónó og steríó, trommusóló og læti. og coverdale er eilífðartöffari með tennur sem búið er að spartsla í og mála....

stuðið var þó mest í uppklappinu þegar kallinn sögn soldier of fortune án undirleiks - eða kannski ekki stuð, bara svona nostalgíufílingur sko - og svo tóku þeir burn í lokin sem var aldeilis hressandi.

skákmótið í vin til heiðurs lilju tókst hrikalega vel. tuttuguogsjö kvekendi skráðu sig en metið þar áður var átján á morgan kane skákmótini í fyrra. þá fengu allir þátttakendur morgan kane bók sko.

liljumotið aron inginú fengu allir bækur, sérvaldar af þeim braga kristjóns og ara gísla í bókinni ehf. og það var happadrætti þar sem aron ingi græddi skákborð signaterað af sjálfum kasparov. og flotta kalla með. finnur kr. fékk miða í borgarleikhúsið.

 

liljumótið 1björn þorfinns, nýkjörinn forseti skáksambandsins vann þetta. ekki ég. svo ógeðslega langt því frá...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband