alveg fokkíng kasóléttur barasta

 

æi, langaði bara að deila þessu_hérna_skrýtna_dóti   með þér.

raunveruleikinn er alltaf lang ótrúlegastur sko.


Mót til heiðurs Guðfríði Lilju - allir velkomnir

 

Gylfi Ægis og sonur hans voru að syngja og spila í Máli og menningu í dag og staðurinn stóð sko undir nafni. Minning um mann og Sjúbbírarírei +  nokkur harmonikkulög.

en að öðru:

Mót til heiðurs Guðfríði Lilju

 

Fyrir utan félaga í Skákfélagi Vinjar hafa nokkrir sterkir skákmenn og – konur boðað komu sína í Vin, Hverfisgötu 47, á mánudaginn kl. 13:00 í mót til heiðurs Guðfríði Lilju Grétarsdóttur sem nýlega hefur látið af störfum sem forseti Skáksambands Íslands.

 

Má þar nefna: Omar Salama, Lenku  Ptácníková, Jöhönnu Björgu Jóhannsdóttur, Pétur Atla Lárusson lilja og skákog Þórð Sveinsson forseta Kátu biskupanna. Nýkjörinn forseti Skáksambandsins, Björn Þorfinnsson og mótframbjóðandinn Óttar Felix Hauksson mæta einnig en vinningar eru einmitt bækur um - eða eftir - Guðfríði, Lilju, Björn, Óttar og Felix, sem þeir heiðursfeðgar Bragi Kristjónsson og Ari Gísli Bragason hafa tekið til. Munu þeir sjá um verðlaunaafhendingu og fá allir þátttakendur glaðning.

 

garry kasparov Veglegir happadrættisvinningar verða einnig, m.a. skákborð áritað af sjálfum Garry Kasparov, þar sem eðalskákkallar fylgja með. 

 Skákstjórar eru þeir Robert Lagerman og Hrannar Jónsson. 

Allir eru velkomnir til leiks en þátttaka kostar ekkert (og er kaffihlaðborð  a la Vin, sem aldrei hefur brugðist, innifalið)! 

 

Vin er athvarf Rauða kross Íslands fyrir fólk með geðraskanir og er að Hverfisgötu 47 í Reykjavík. Hrókurinn hefur staðið fyrir æfingum á mánudögum í u.þ.b. fimm ár og Skákfélag Vinjar er aðili að Skáksambandi Íslands. Síminn i Vin er 561-2612

lilja og hrafn í vinGuðfríður Lilja og Hrafn Jökulsson í æsilegri jafnteflisskák í Vin í fyrra.

 


í betlehem...

 

... nei á landspítala fæddist drengur. jebbs, ingveldur bloggvinkona mín aka ingvar litli bróðir, og auðvitað tjelling hans hún helga, áttu pilt núna áðan barasta.

hann er víst ótrúlega líkur besta vini ingvars, honum...

nei, uss má ekki segja svona. hann er víst líkur honum pabba mínum, sem er sko líka pabbi ingvars. semsagt gullfallegur.

jamm, þá á mamma orðið tíu stráka, pabba, þrjá pilta og sex piltapilta. stelpan kemur seinna. ætli ég taki ekki að mér djobbið. eða kannski.

krefst þess að hann verði skírður arnljótur.

krefst þess.

en til hamingju, ingveldur og helga kr. olsen.


vinir frjálslyndra

 

æi, það er náttúrulega búið að skrifa heil ósköp um bangsann fyrir norðan, sem er kannski ekki skrýtið sosum. sjaldan að mórauður ísbjörn trilli um dali skagafjarðar, eða þar um kring...

baggalúturinn var fljótur til og setti saman snilldar_drápu sem matthías jochumson hefði verið stoltur af.

en magnús þór hafsteins, formaður félagsmálasviðs akraness... eða kannski fyrrum, hvernig var það? setur saman heljarinnar kálf á eyjunnipunkturis og húðskammar umhverfisráðherra. hefði sko viljað deyfa bangsa og senda hann fjörutíu sjómílur út á haf og viss um að alheimur hefði hampað okkur þvílíkt.

einn sem kommentaði sagði: er þá loksins kominn innflytjandi sem þér þykir vænt um?

góður...

 

annars finnst mér bangsi góður. hef oft étið hann, eldaðan á allskyns máta. bestur í karrý með hrísgrjónum...

og hjartað maður. jebbs. eins og lambalifur barasta.


ÞÚ GETUR SJÁLFUR VERIÐ FÍLAPENSILL

 

beilaði á dansinum fyrir tíundu bekkinga já. beilaði. samt íslandsmethafi í maraþondiskódansi fyrir ..... árum.

en ég á einn tólf ára dúd og annan næstum því sextán. svo er alex hans ingvars að verða sautján og bíður eftir að eignast lítið hálfsystkini sem átti að koma á miðvikudaginn en....

við vorum semsagt aðeins að ræða unglingabólur og fílapensla. jebbs.

og á meðan ég sem í huganum sögu af holger danska, hamlet, dönskum köstulum og konunghöllum, tívoli og mögnuðum listsýningum, þá er best að skella inn einum LITLUM_OG_SÆTUM_LEIK  þér til dægrastyttingar. algjör snilld.

hver var að tala um unglingabólur og fílapensla, ha?

annars mæli ég með megasplatti, neðst til vinstri. mega mega splatter.


gillelej gilleljo

 

Leeds tapaði fyrir Doncaster og það er bömmer dagsins.

Tommi frændi á afmæli og til hamingju með það. Stefán Páll bróðir pabba hefði orðið sextugur i dag en hann lést í flugslysi fyrir ríflega tuttugu árum. góður maður, skemmtilegur og gaf mér einu sinni rjúpur i matinn. uppáhaldsfrændi flestra barna - sem voru honum skyld.

indianajones_narrowweb__300x430,0En við Atli stúfur fórum að sjá Indiana Jones á föstudagskvöld því hann er að brillera í  sjöunda bekk. alveg þvílíkt. Ákváðum að slökkva á heilanum og njóta því maður hafði heyrt bæði góða dóma og vonda. Prýðisskemmtun en ekki beinlínis raunveruleikanum samkvæmt.

en hvað veit ég....

Er að fara til Gilleleje, dúlla í sumarhúsi og kíkja á listsýningar, fá mér einn grænan og skreppa í tívoli. set hér inn smá skemmtun svona á meðan jebbs....

Þetta er hann Neil Peart trommari Rush að taka STÓRSÓLÓ - ekki út í bláinn að dúddinn hefur verið kosinn besti trommari heims oftar en einu sinni.

Og þetta er Matt Spinak, Rush aðdáandi og trommari að HERMA  eftir Peart í lögunum Tom Sawyer og YYZ. Gerir það bara nokkuð vel strákurinn. svei mér þá.

Jökull sonur er að fara í skólaferðalag til köben og er svona ótrúlega heppinn að faðir hans er einmitt í sömu vél á leiðinni út. Faðir hans mun þar taka létt dansspor fyrir skólafélaga Jökuls, sennilega bara í vélinni. Töff lökk fyrir Jölla....

Og það sem betra er. Faðir hans er með í vélinni heim líka. jebbs. Þvílík hamingja. Sá á eftir að skammast sín maður hehehehe

en ég kaupi ekki bjór fyrir drenginn.

hann getur gert það sjálfur....


ein króna og fimmtíu aurar

 

"Ekki skal skifta um mark, nema að hálfnuðum leik. Hlé milli hálfleika má ekki standa lengur en 5 mínútur, nema að dómari leyfi.

Þegar mark hefur verið skorað, skal sá flokkur, sem undir varð, spyrna af stað, en eftir markaskifti að hálfnuðum leik, skal sá flokkur spyrna af stað, sem ekki gerði það í upphafi, en ávalt sem fyrir er mælt í 2. gr."

jamm, ég á sko knattspyrnulög íþróttasambands íslands, með lagaskýringum, frá 1928. Gutenberg prentsmiðjan prentaði og bæklingurinn kostaði þá eina krónu og fimmtíu aura. þetta er snilldarrit, þar sem enskt knattspyrnumál er m.a. íslenskað, nú eða eiginlega íslenzkað...

þetta skiptist í 30 greinar laga, mislangar og fyrri partur 4. greinar hljóðar svo:

"Þá er marki er náð, ef knötturinn fer milli marksúlna og undir markás, nema lög mæli öðruvísi fyrir, enda sé honum eigi hent, né heldur barinn eða borinn fram af neinum leikmanni sóknarflokksins.

Sú sveit vinnur leikinn sem skorar fleiri mörk. Ef engin mörk hafa verið skoruð, eða jafn mörg á báða bóga, að leikslokum, þá er jafntefli."

ég er svo sannarlega stoltur eigandi þessarar smábókar enda leynast auglýsingar þarna bæði í byrjun og við endann. ein er svona:

ALLIR sem íþróttir iðka, þarfnast íþróttavarnings.

Ég hefi ávalt alls konar íþróttaklæðnaði og áhöld.

Útvega fyrir íþróttafélög sérstaka búninga, merki og fleira.

Vörur sendar gegn póstkröfu hvert á land sem er.

Haraldur Árnason Reykjavík.

 

reyndar auglýsir verzlunin ÁFRAM, Laugaveg 18, líka og síminn þar er 919....


misskilningur, því er nú aldeilis miður, kæri vinur sveinbjörn...

 

tvö skákmót í dag sko, tvö stykki. gekk hvorki vel né illa en lufsaðist í kvöld á hraðskákmót hjá helli í breiðholtinu. þrír af sjö á móti efnilegustu unglingum landsins, ekki svo slæmt. tefldi þó ekki við sigurvegarann, omar shalama.

sem betur fer....

annars gætir hér örlítils misskilnings hjá honum sveinbirni i. baldvinssyni.

því miður....

úr bókinni "allt fram streymir" sem geymir íslensk sumarljóð. fallegt en yfirvaldið búið að rústa allri fegurðinni sko.

Ég þekki land

Ég þekki land

þar sem fuglar fljúga

yfir klettóttri strönd.

 

Ég þekki land

þar sem sólin sest aldrei

alveg.

 

Ég þekki land

þar sem sjórinn

er ennþá blár.

 

Ég þekki land

þar sem himinn og haf

mætast í sumarnóttinni.

 

Og samt

er það ekki til sölu.

 


Hermann daz formann

 

jamm, það er stuð og fjör í danmörkunni. kannski maður reyni bara að skella sér á einn leik þegar maður lufsast þarna yfir eftir nokkra daga.

en ég fann sko viðtal við hermann haraldsson sem er formaður bröndby if - sem er væntanlega idrættsforening - en hann er sko bara gamall skólabróðir og líka bróðir halla hó, haraldar christians hoe haraldssonar knattspyrnumanns úr KA og síðar KR, sem var hrikalegt hliðarspor...

hemmi var sko alveg liðtækur markmaður og var auðvitað í KA og fleiri liðum og gott ef hann spilaði ekki bara með bröndby.

gaman að http://www.youtube.com/watch?v=lpAVBWP-UDM þessu hér maður. ekki séð dúddan í ótrúlega mörg ár.

held með KA, Leeds og Bröndby...


mbl.is Neyðarblysum skotið á áhorfendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

little britain

 

heyrði í útvarpinu að hundruð LEIKSKÓLABARNA, endurtek; LEIKSKÓLABARNA í bretlandi þurfa að fara í magaminnkunaraðgerð vegna offitu.

hvað á að gera við foreldra þeirra, ha??

svo var ég að lesa the gardian, meðal annars vinnublaðið eða WORK.... getið skoðað www.guardianjobs.co.uk ef þið eruð að leita að vinnu..

þar segir m.a. jean cook, yfirmaður samskiptamála hjá stórfyrirtæki: " I had the awful experience of sacking someone whose mother had just died".

aðrir yfirmenn höfðu svipaða sögu að segja, eitthvað svona erfitt. ef þið viljið ekki vinnu í bretlandi, því það er alltaf verið að reka einhvern er eitthvað hér sem heitir www.vinna.is eða svei mér þá ef það var ekki líka www.job.is

.... en svona er bretland í dag.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband