frídagar eru verulega svalir

 

svona frídagar eru bara ekkert afleitir. ég vil fleiri svona.

vakna seint. sund og pottar og gufa og sól og ís.

leiknir og KA í breiðholtinu þar sem maður hitti slatta af akureyringum - ofkors - þó reyndar ekkert hafi verið skorað.

svo matur hjá vidda bró og rögnu, eða sennilega matur hjá rögnu... og algjört chill eftir það.

algjört chill og meira svona. er reyndar að taka til myndir fyrir kynningu á grænlandi í næstu viku, á nokkur hundruð stykki og agalega erfitt að skera þetta niður. kominn í svona sextíu.....

hér er ein frá kulusuk:

Solned5

mynd: lars peter stirling

og reyndar önnur....

hundarnir í kulusuk

mynd: andri thorstensen


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband