ótrúlega flott

 

jamm, gott að það er eitthvað sem gleður. allavega mig.

hlynur_halls var að opna sýningu í listasafni reykjavíkur. eða kannski frá en ekki í því hann flutti verk safnsins á tuttugu staði í miðborginni og setti í búðir, á kaffihús og svona. flutti listina bara til fólksins. kjarval í múltí kúltí, eggert blómadúd í 10-11 og svo er eitthvað í eymundsson austurstræti og í vísi á laugaveginum. snilld.

og enn meiri snilld að hann tók eitthvað af öllum þessum stöðum í staðinn og flutti í listasafnið. bekk úr landsbankanum, bókahillur úr eymundsson og það kúlasta; gluggaútstillinguna í vísi, hrúgu af banönum, og allt breytist í glæsileg listaverk í listasafninu í hafnarhúsinu.

mér finnst þetta ótrúlega kúl.

 

svo var ég að trítla á laugaveginum og sá að nýja hljómalindarhúsið, sem einu sinni var kling og bang og er þarna beint á móti 22, hefur verið málað röndótt. þetta er magnað.

djöfull er fólk duglegt að fá fríkaðar hugmyndir og framkvæma þær.

 

ég fékk þá fríkuðu hugmynd að reyna að lufsast í rúmið fyrir miðnætti, svona einu sinni. en sé að ég næ því varla úr þessu. sjitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmir Arnarson

Nú sé ég einn gallan við að búa í hinu hrjóstuga og menningarsnauða Austur Íslandi.  Ég get ekki upplifað listviðburð sem þennan en ég var svo sem ekkert duglegur áður að fara á sýningar.  Jæja já.

Hilmir Arnarson, 7.11.2008 kl. 00:42

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Og ég komst ekki til að sjá frænda fremja þetta fotta verk. 

Marinó Már Marinósson, 7.11.2008 kl. 14:49

3 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

List er leiðinleg.

Ég hélt að fólk á þínum aldri væri alltaf sofnað fyrir klukkan níu og vaknað um fimmleytið.

:)

Ingvar Valgeirsson, 7.11.2008 kl. 20:41

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og Ingvar er leiðinlegur, enda strengjalistamaður!

En Hlynur er vænn drengur og óþrjótandi hugmyndasmiður.

Magnús Geir Guðmundsson, 10.11.2008 kl. 01:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband