steingrímur joð, hið framsýna goð

 

jamm, ekki skrifaði ég ÞETTA

en vitna nú samt í það.

ef maður er á stanslausu fylleríi og býður endalaust í glas eru allir hálfvitar sem segja manni að nú sé komið nóg. en viti menn, þetta eru bestu vinirnir.

á endanum bestu vinirnir og vona að þið farið að fatta það.

 

vona að hippó kallinn nenni að lufsast í gegnum það og ekki síður sjálfstæðistjellingin hún ingveldur.

 

stel grimmt af dv.is og visi.is enda á mbl.is. jebbs, ekkert helvítis moj.

 

hippó: á eftir að fara aftur í gegnum castró analíseríngu þína og skal gefa mér tíma í það. þætti leitt ef ég yrði þér sammála, skoða það betur. sýnist að við fjandvinirnir gætum samt skroppið á einn leik eða svo næsta sumar enda báðir gulir og glaðir, bara ég er gulari og glaðari, og verð örugglega það sumarið.

 ingveldur: lestu þetta og þá sérðu að þú ert persónulega völd að kreppu sem sligar landann og hefur þar af leiðandi fyrirgert rétti þínum til jólagjafar. og afmælisgjafar, jamm, líka það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ekki sé ég hvernig skattalækkanir og stóriðja hérlendis hefur haft afgerandi áhrif á lausafjárskort erlendra banka, sem er jú að risastórum parti ástæða verðbólgu hér - það er líka verðbólga og kreppelsi víða í hinum vestræna heimi þar sem Sjálfstæðisflokkurinn var ekki við völd. Nú er einmitt frétt í skuldlausa sjónvarpinu mínu um björgunaraðgerðir banka í kreppunni í útlandinu. Allt Geir H. Haarde að kenna.

Skattalækkanir hafa pottþétt aldrei valdið neinni kreppu. Skattar eiga aldrei að vera hærri en þeir þurfa að vera. Ríkið á ekki laun fólksins, eins og Steingrímur, átrúnarðargoð þitt, virðist oft halda.

"Helvítis ríkisstjórnin er að gera út af við mig" sagði maðurinn þegar hann sá fréttirnar, slökkti á 50 tommu plasmaskjánum, fór út í Landkrúserinn og blótaði afborgununum af Vísa rað og myntkörfubílaláninu...

Ingvar Valgeirsson, 18.9.2008 kl. 19:08

2 Smámynd: Björn Jóhann Björnsson

Arnar minn, Steingrímur Joð er ágætur en Stólarnir eru miklu betri. Vildi bara rétt lauma því hér að að KA-menn steinlágu í dag í bikarúrslitaleik norðurdeildarinnar, 4-0. Frændi minn hélt því hreinu í markinu og átti hlut í tveimur mörkum með snilldarútspörkum beint í fæturnar á eldfljótum framherjum! Ítreka hérmeð spá mína um Stólarnir verða komnir í efstu deild árið 2012!

Björn Jóhann Björnsson, 18.9.2008 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband