þetta skírist alltsaman......

 

heyrði í piltunum mínum, enda pabbahelgi framundan.

svo reyndar þegar ekki er pabbahelgi verður lítill frændi skírður og tekinn formlega í sauðahjörð drottins...

annar sagði að hann vildi gjarna koma. hinn sagðist sko alveg vera til í að koma í skíringuna.....

 

 

 

hann áttaði sig reyndar, svona í símanum að þetta var eyrnabrjótur. en of seint. of seint sko.

eins gott að hann áttaði sig enda byrjaður í framhaldsskóla.

 

 

það er semsagt skíring um aðra helgi. barnið hefur fyrir löngu fengið nafn. heitir eftir gítarhetju og heiðnum guði. enda er faðir hans að berjast í því að verða heiðinn kommúnisti en þykist enn vera sannkristinn og heiðblár andskoti.

en það breytist þegar hann þroskast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Að hannþarnalitliþúveist þroskist?

Ekki sjéns!

En til hamingju með litla frændsveppin..skíraðan!

Magnús Geir Guðmundsson, 4.9.2008 kl. 23:33

2 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

heitir hann hendrix týr?

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 4.9.2008 kl. 23:38

3 Smámynd: arnar valgeirsson

ekkert hrikalega langt frá lagi elín. samt ekki rétt.

þetta var nú sosum fatal bull að skrifa þetta magnús. hann þroskast náttúrurlega ekkert héðan af. eins og fjögurra ára dúddi sem getur búið til börn og spilað gamla nóa á gítar. samt ágætur.

arnar valgeirsson, 4.9.2008 kl. 23:55

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Hendrix Týr er ágætishugmynd - skuggalega nálægt raunveruleikanum.

Ingvar Valgeirsson, 6.9.2008 kl. 16:32

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Heheheeh!

Magnús Geir Guðmundsson, 8.9.2008 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband