dauðakossar valgerðar

 

nú, lufsaðist auðvitað í laugardalinn og vonlenskan hljómaði þegar ég trítlaði inn. haugur af fólki. sumir fullir, flestir þó ekki.

björkvar ógeðslega ofarlega en samt fyrir miðju sko. færði mig neðar þegar björk var búin með nokkur lög. stóð hjá karli hennar, móður og dóttur. fannst það svolítið merkilegt en svo fattaði ég að það var auðvitað ekkert merkilegt. fólk alveg eins og ég.

bara frægara.

og ríkara.

ekkert hugmyndaríkara þannig, en þau koma hugmyndum sínum í framkvæmd, ekki ég.

og eiga haug af pening. ekki ég...

mér fannst björk bara drullugóð og flottir tónleikar. svo fannst mér líka gaman að sjá trailerinn af framtíðarlandinu sem Þorfinnur Guðna gerði eftir bókinni hans andra snæs.

flott, nú eða eiginlega samt ömurlegt, bara flott gert, að sjá þegar öndin er að reyna að bjarga hálfútklöktum eggjunum þegar vatnið hækkar skuggalega hratt. svo er klippt og valgerður að kyssa einhverja útlenska dúdda við undirritun samninga. svo er klippt og ungarnir drukkna áður en þeir komast allir úr eggjunum og öndin alveg í lamaslysi. svo er klippt aftur og geir haarde og einhverjir dúddar mynda eitthvert harmonikkuhandaband, þvílíkt kátir með þetta.

jebbs, hvað ætli við græðum nú á þessu á endanum.

og nú væla bankastjórarnir, sem eru búnir að drulla upp á bak, um að virkja meira svo þeir fái pening.

einmitt, virkja bara þjórsá og goðafoss og svona. sýna útlendingunum það. hrikaleg fegurð þegar landið er eitt uppistöðulón með glimrandi fallegum orkuverum hist og her.

og allir borga með dollurum ef geir haarde fær að ráða því það verður gjaldmiðillinn hér.

djöfullin er þetta, eru allir orðnir spinnegal? nema ég auðvitað....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Vonandi varstu með trefil?   Það var svo askodi kalt. 

Marinó Már Marinósson, 29.6.2008 kl. 00:53

2 Smámynd: arnar valgeirsson

smá kuldi þegar sólin fór. en ekkert til að væla yfir. maður er bara að verða of góðu vanur. vona bara að það fari aðeins að kólna núna þegar sumarfríið er búið... í bili.

arnar valgeirsson, 29.6.2008 kl. 00:57

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nei, sæbarðir svarfdælingar væla nú ekki yfir smá norðanandvara, annað væri nú!

Spáð rigningu að minnsta kosti eftir helgina skildist manni!

Þetta dollarahjal í nafnanum næsta óráðs!

En hvað segirðu eftir afrek kvöldsins, viltu verðlaun?

Magnús Geir Guðmundsson, 29.6.2008 kl. 02:08

4 Smámynd: Hlynur Hallsson

Takk fyrir þessar skýrslu Arnar. Og svo er bara að koma hugmyndunum í framkvæmd! Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 29.6.2008 kl. 07:24

5 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

...semsagt "drullugóðir" tónleikar......

Fanney Björg Karlsdóttir, 29.6.2008 kl. 08:42

6 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Þo mér sé svona sirka slétt sama um nokkrar endur uppi á hálendi þá vil ég bera fram eina spurningu... af hverju bjargaði Þorfinnur ekki ungunum fyrst þetta er svona svaðalegt drama?

Ingvar Valgeirsson, 29.6.2008 kl. 23:03

7 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Já nákvæmlega, það var hann sem horfði upp á þetta gerast og gerði ekkert... og tók mynd af því í þokkabót

Guðríður Pétursdóttir, 30.6.2008 kl. 13:29

8 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Þýðir það ekki að hann sé til í að láta aðra þjást til að afla málstað sínum fylgis?

Svo má spyrja sig, jafnvel af gefnu tilefni - voru þær myndir teknar þar sem hann segir?

Ingvar Valgeirsson, 30.6.2008 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband