Leeds tapaði fyrir Doncaster og það er bömmer dagsins.
Tommi frændi á afmæli og til hamingju með það. Stefán Páll bróðir pabba hefði orðið sextugur i dag en hann lést í flugslysi fyrir ríflega tuttugu árum. góður maður, skemmtilegur og gaf mér einu sinni rjúpur i matinn. uppáhaldsfrændi flestra barna - sem voru honum skyld.
En við Atli stúfur fórum að sjá Indiana Jones á föstudagskvöld því hann er að brillera í sjöunda bekk. alveg þvílíkt. Ákváðum að slökkva á heilanum og njóta því maður hafði heyrt bæði góða dóma og vonda. Prýðisskemmtun en ekki beinlínis raunveruleikanum samkvæmt.
en hvað veit ég....
Er að fara til Gilleleje, dúlla í sumarhúsi og kíkja á listsýningar, fá mér einn grænan og skreppa í tívoli. set hér inn smá skemmtun svona á meðan jebbs....
Þetta er hann Neil Peart trommari Rush að taka STÓRSÓLÓ - ekki út í bláinn að dúddinn hefur verið kosinn besti trommari heims oftar en einu sinni.
Og þetta er Matt Spinak, Rush aðdáandi og trommari að HERMA eftir Peart í lögunum Tom Sawyer og YYZ. Gerir það bara nokkuð vel strákurinn. svei mér þá.
Jökull sonur er að fara í skólaferðalag til köben og er svona ótrúlega heppinn að faðir hans er einmitt í sömu vél á leiðinni út. Faðir hans mun þar taka létt dansspor fyrir skólafélaga Jökuls, sennilega bara í vélinni. Töff lökk fyrir Jölla....
Og það sem betra er. Faðir hans er með í vélinni heim líka. jebbs. Þvílík hamingja. Sá á eftir að skammast sín maður hehehehe
en ég kaupi ekki bjór fyrir drenginn.
hann getur gert það sjálfur....
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
malacai
-
annaeinars
-
atliar
-
aua
-
ormurormur
-
asdisran
-
astasoffia
-
birgitta
-
bjb
-
gattin
-
baenamaer
-
bestfyrir
-
tilfinningar
-
borkurgunnarsson
-
einarolafsson
-
eirikurbriem
-
ma
-
fanneybk
-
arnaeinars
-
vglilja
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
gunnarb
-
gunz
-
hoax
-
nesirokk
-
veravakandi
-
heida
-
rattati
-
hemba
-
hilmir
-
kht
-
disdis
-
hlynurh
-
don
-
ghostdog
-
tru
-
jahernamig
-
ingvarvalgeirs
-
jevbmaack
-
jensgud
-
johannbj
-
jarnar
-
jon
-
lundi
-
lauola
-
meistarinn
-
marinomm
-
pala
-
peturorn
-
siggagudna
-
sigurdursig
-
snorris
-
ipanama
-
urkir
-
thoraasg
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 1912
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
bless
Guðríður Pétursdóttir, 26.5.2008 kl. 00:16
Já góða skemmtun ARnar minn um leið og ég verð að segja, að ég er alveg gáttaður á þessu tapi Leeds! Átt samúð mína alla!
Þið bræðurnir bloggið annars skuggalega líkt um fallna frænda og bioferð, mætti halda að sami maður væri á ferð, bara með smá stílbrot haha.
En ussuss, ekki ala á áfengisneyslu við stráksa!
Magnús Geir Guðmundsson, 26.5.2008 kl. 17:16
Sá leikinn hjá Leeds. Ótrúlegur leikur. Þeir voru mun betri. Aðdáendur Leeds svo voru á leiknum voru hágrátandi eftir leikinn. En svona er þetta.
Marinó Már Marinósson, 28.5.2008 kl. 00:20
vil taka það fram hérna að pabbi beilaði á dansinum...
...Ég man ekki eftir að hafa verið jafn vonsvikinn áður.
Jökull Logi Arnarsson (IP-tala skráð) 31.5.2008 kl. 13:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.