filmstjernesolbrilleríi

 

aldeilis yndislegir drengir sem ég á. að hálfu bara að vísu...

shaun_the_sheep_preview_catchsá að það hafði verið hringt í dag og hringdi til baka auðvitað. en það var bara til að segja mér að hrúturinn hreinn væri að fara að byrja á rúv.

en þá var hreinsi löngu búinn.

en ég hafði reyndar verið með grænlensku kvikmyndastjörnunum sem við andrea fundum í tasiilaq. fórum á nings og í smáralind að kaupa filmstjernesólgleraugu.... og svona.

annars var það fótbolti í kvöld, ekkert helvítis gláp heldur alvöru hlaup og læti. gott á mig en liðið mitt vann samt. jebbs.

svo er bara alveg að koma miðvikudagur mar. jebbs. þá er meðal annars á dagskánni að sjá myndlistarsýninguna hans helga þorgils í gallerý turpentine.

jamms.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Kjerúlf

Væri til í að sjá þá sýningu, kannski hef ég tíma til að kíkja milli skrifa.

Lilja Kjerúlf, 8.4.2008 kl. 23:43

2 Smámynd: Helgi Már Barðason

Keypti mér komplett hrútinn Hrein á DVD um daginn - frábær fjárfesting sem nýtist allri fjölskyldunni!

Helgi Már Barðason, 9.4.2008 kl. 08:58

3 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Til hamingju með sólgleraugun

Guðríður Pétursdóttir, 9.4.2008 kl. 14:42

4 Smámynd: Sigríður Guðnadóttir

þú ert alveg ótrúlegur !!  vildi svo bara láta þig vita að þú mátt alveg fá Júnna lánaðan í karladúll

Sigríður Guðnadóttir, 9.4.2008 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband