ávaxtaðu þitt hálfa pund

 

var að lesa hér á yahoo síðunni um ónafngreindan dúdda sem í einhverju gríni setti 50 pens undir, eða sextíuogeitthvaðkrónur, og veðjaði á býsna ólíklega kandídata í átta hestahlaupum, nú eða race-um, í gær.... nú eða föstudag þannig lagað séð....

hann hefði betur sett heilt pund undir, eða jafnvel tvö, því líkurnar voru tvær milljónir á móti einum, enda fáránlega ólíklegt að þessar aflóga bikkjur myndu hafa þetta í öllum þessum átta hlaupum. en þær gerðu þær nú samt og dúddinn, þessi ónafngreindi, sem á örugglega alltíeinu ótrúlega marga vini, halaði inn milljón pundum.

þetta byrjaði með að "isn´t that lucky" trillaði fram úr öllum og kom fyrst og svo koll af kolli þangað til "a dream come true" valhoppaði í fyrsta sæti á wolverhamton hlaupabrautinni í miðju englandinu og þá voru pundin milljón í höfn.

en í dag hélt hinn ónafngreindi dúddi bara áfram að gambla og setti fimm sinnum hálft pund undir fimm mismunandi hlaup og tapaði auðvitað í öllum fimm, heilum tveimur og hálfu pundi.....

graham sharpe, hjá william hill gambling félaginu sem er með tvö þúsund veðj.... halló, veðjútibú... í landinu segist vonast eftir að maðurinn haldi þessu áfram því ef hann geri þetta fjögurhundruðþúsundsinnum í viðbót nái þeir öllu af honum aftur..... sénsinn bensinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband