tólf vetra trippið í svaka fíling

 

til hamingju með afmælið atli. 
 
atli er semsagt sonur minn, sá yngri.
 
 
brother of another mother eins og þeir segja, bræðurnir….
 
hann er tólf í dag og það er svona byrjunartáningastigið. 
annars er atli búinn með eina afmælisveislu þar sem hann græddi bigtæm og önnur er á morgun, fyrir skólafélagana. 
 
strákana. 
þá verða pizzur og eitthvað svoleiðis.
 
 
 http://www.blog.central.is/atli-95
 
 
það eru sko allir að blogga, smá plögg...
 
annars man ég þegar við móðir hans, kasólétt, vorum að fara í gegnum nöfn á drengjum. 
eitt nafn eða tvö, langt eða stutt, og svo framvegis. 
 
ef henni leist á eitthvað var ég ekki geim. og öfugt auðvitað. 
en drengurinn átti að fæðast 5. des sem var afmælisdagur atla vinar okkar, sem reyndar er magnússon. 
algjör prýðispiltur. og málið dautt.
atli er fallegt nafn.
en hann fæddist auðvitað ekkert 5. des. 
hallo, þetta er sjálfstæður einstaklingur.
 
 
verð samt að bæta því við að þegar sá eldri fæddist, hinn þarna brother of another mother, þá gerði hríðarél og gríðarlæti á norðanverðu landinu. 
vel á annað hundrað fjár drápust. allt bilað.
 
þetta var aðfararnótt 23. júní. já, júní...
hann heitir jökull logi. er fimmtán. og hálfs.
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Til hamingju með guttann.

Minn á líka afmæli í dag, aðeins eldri 27 skil það ekki eins og ég er ung

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 29.11.2007 kl. 01:24

2 Smámynd: Haffi

Vá tíminn flýgur...12 ár eins warp-hraða.  Til hamingju með piltinn, svo fær Auður auðvita knús frá mér

Haffi, 29.11.2007 kl. 07:54

3 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

til hamingju með þann "litla"

Guðríður Pétursdóttir, 29.11.2007 kl. 14:31

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Þessir vandræðaunglinar eru oft æðislegir. Litlu skrípin þín, Arnljótur, eru frábær kvikindi og virðast ætla að salta prótótýpuna mína í tónlistarsmekk. Þó er sá eitthvað að taka sig á.

Ef ég eignast strák næst á hann að heita Adolf. Eða ekki.

Ingvar Valgeirsson, 29.11.2007 kl. 16:22

5 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Til hamingju með guttann.

 En svona annars

Ef ég hefði verið fullur hefði ég lesið þetta þá hefði ég lesið þetta sem "tólf metra..."

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 29.11.2007 kl. 18:07

6 identicon

Innilega til hamingju með soninn. Þetta er alveg örugglega prýðis bogmaður sem að þú átt. 

Ingunn (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 21:04

7 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Til hamingju með strákinn ....

Fanney Björg Karlsdóttir, 1.12.2007 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband