neistaflug

 

var í afmælisveislu hjá honum atla syni mínum. hann tók smá forskot enda verður hann ekki tólf fyrr en á fimmtudaginn. þá fær hann hamingjuóskirnar þó hann hafi fengið pakkann í dag. og ég fékk hinsvegar bæði kökur og nammi og er feitari í dag en í gær....

mál og menning um helgina og jólaæðið er að byrja. það sem helst selst er hnífurinn hans óttars norðfjörð, harðskafinn hans arnaldar, bíbí hennar vigdísar og svo einar már og svosem ýmislegt. hrafn jökuls og jón kalman stefáns renna svosem ljúflega út. ljóðin hans ara og ljóðin hans þórarins eldjárn. jebbs, og barnabækur í lange baner sem er gott. börn eiga að fá fullt af bókum.

búinn með neistaflug og byrjaður á hótel borg. tók ofsa tíma að fara í gegnum neistaflug en náði mér þó á flug seinnipartinn. hún er svolítið seinlesin og ekki eins léttmelt og þægileg eins og stúlka með perlueyrnalokk. fjallar um fjölskyldu sem flytur til london úr sveitinni árið 1792 og gerist svona næsta árið. lífið var náttúrulega svolítið grimmt þarna og misvel upplýstur pöpullinn. unglingaástir og þrælavinna, öldrykkja og borgarastríð í frakklandi leika stóra rullu. og svo hann william blake. sem ég hef alltaf haldið uppá. þarna fékk ég reyndar nýja sýn á kallinn en hún tracy chevalier, sem ritaði skrudduna, lagðist í bilaða heimildarvinnu fyrir sögulega skáldsögu sína og er tveggja síðna heimildarskrá með í lokin.

sölvi björn sigurðsson, rithöfundur, held ég að austan, þýddi og bara nokkuð vel.

bókin er semsagt góð en ekkert léttmeti, þannig. eitthvað um 360 bls sem er nú bara svona meðal. þó eru oft litlu bækurnar þær sem maður man best eftir, t.d. stúlka með perlueyrnalokk......

svo líka þar sem vegurinn endar, eftir hrafn jökuls og ekki síst bobby og dingan eftir einhvern ungan breta. kom út fyrir svona sjö árum og er bara snilldin ein. lítil og sæt.

það eru alltaf að detta inn nýjar og áhugaverðar bækur í búðina þessa dagana og mig langar að lesa helling. alveg bara. sem betur fer ekki allt samt.

jebbs, þar hefurðu það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með strákinn súper pabbi

Úps, þær eru margar bækurnar sem mig langar til að lesa......erfitt að velja enda margt gott í boði.......

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 25.11.2007 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband