mannanna börn yfir poppi

 

lagðist yfir dvd í nótt. jebbs, í nótt, svona í staðinn fyrir að fara að lúlla bara. poppaði og alles. svo þegar myndin var búin nennti ég bara ekki á fætur. lá bara undir teppi og vaknaði í morgun við þingræður alþingismanna. ósköp kósý.

en myndin var children of men. held ég bara tilnefnd til þrennra óskara. í aðalhlutverkum þrír töffarar, julianne moore, clive owen og michael cane.

children-of-men-poster-1 gerist 2027. og gerð eftir sögu p.d. james. allt í upplausn. konur geta ekki eignast börn. yngsta barnið í heiminum er átján. jamm, lítur ekki sérlega vel út.

eins og segir á coveri: the year 2027. the last days of the human race. no child has been born for 18 years. he must protect our only hope.

það er verið að tala um hann theo dylan sem er eiginlega og þannig séð clive owen. hann á að redda málunum, enda átti hann víst alveg séns í að verða nýjasti james bond. sem hann varð reyndar ekki.

og hér kemur snilldin. þeir sem ekki kunna sænsku, fari bara á námskeið hehe.....

"jordens invånere klarer inte längre av att foröka sig. världens yngste medborgare har precis avlidit, endast 18 år gammel. och mänskligheten tvingas inse att den är på väg att dö ut. byråkraten theo har förlorat tron på framtiden men när mänsklighetens sista hopp (það er von sko, ekki hopp), en gravid kvinna, plötsligt dyker upp bestämmer han sig för att hjälpe henne. men även andra är intressarede av att få tag i kvinnan och"...

jamm, þá byrjar spennan. myndin fín. mæli með henni. maður er alveg bara lamaður á eftir og kemst ekki uppúr sófanum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Sænska - viðurstyggð. Bévítans sósíalistaríki. Hræðilegt að foreldrar vorir skuli fara þangað og það til þess að hlusta á djass, sem er leiðinlegt lag. Þau hittu samt trymbilinn í Abba, þannig að þetta er ekki alslæmt.

Sjálfur sofnaði ég yfir Children of Men. Sökum tómra leiðinda. Prófa aftur og vona að hún nái ekki að svæfa mif átta sinnum eins og Riddick. Sú mynd er betra svefnmeðal en rohypnol. Leiðinlegri en pólskar alþingisumræður og Manowar til samans.

Annars er ég hress.

Ingvar Valgeirsson, 21.11.2007 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband