björn sölvi í stuði enda fyrrum reykjavíkurmeistari sko. lengi lifir í gömlum...

tek þessa grein af skak.blog.is og redcross.is

skammast mín ekkert því ég á eitthvað i þessu og tók myndir...

Björn Sölvi og Guðmundur Valdimar Þar sem Guðbjörg Sveinsdóttir lét nýlega af störfum sem forstöðumaður Vinjar, athvarfs Rauða krossins, og Þórdís Rúnarsdóttir tók við, hélt skákfélag Vinjar mót þeim til heiðurs strax uppúr hádegi, mánudaginn 12. nóvember. 

7 þátttakendur voru tilbúnir í slaginn en þær stöllur, núverandi og fyrrum stjórar, fylgdust með. Segjast ekki tilbúnar í keppni.

Þórdís lék fyrsta leikinn í skák þeirra Björns Sölva Sigurjónssonar og Árna Jóhannssonar og svo tefldu allir við alla. Umhugsunartími 7 mínútur á mann og var mótið afar spennandi þrátt fyrir nokkrar frumlegar skákir.

Björn Sölvi sigraði að lokum, fékk 5 .5 vinninga í sex skákum en Guðmundur Valdimar Guðmundsson náði jafntefli við kappann.

Það var þó Haukur Halldórsson sem varð annar með fimm vinninga og þau Árni Jóhannsson, hinn síspræki unglingur sem kominn er yfir áttrætt og Embla Dís Ásgeirsdóttir, sem gengið hefur undir nafninu "súper dúper skakdronning" eftir frammiststöðu sína á Flugfélagsmótinu á Grænlandi í sumar, eða Greenland open, sem höfnuðu í þriðja sæti, saman. Guðbjörg og Þórdís

Eftir fjórar umferðir var kaffipása með döðlubrauði og pönnukökum áður en ráðist var í tvær síðustu umferðirnar.

Allir fengu vinninga, bækur, geisladiska eða dvd diska og voru sáttir með sitt. 

Hrókurinn hefur aðstoðað skákfélag Vinjar við æfingar og uppákomur undanfarin fjögur ár og alltaf er teflt á mánudögum kl. 13. Saman standa Hrókurinn og skákfélag Vinjar að ýmsum uppákomum og eru væntanleg jólamót á nokkrum stöðum á næstu vikum.

á fyrri myndinni er guðmundur valdimar að byrja skákina sem endaði jafntefli á móti birni sölva. á hinni er gugga glottandi yfir riddarabyrjun þórdísar. önnur er geðhjúkrunarfræðingur og nokkuð góð í því. hin félagsráðgjafi og nokkuð góð í því. hvorug þó verðandi íslandsmeistari í skák.....

sem minnir mig reyndar á það að ég sagði eitt sinn á blogginu að hrannar baldurs yrði aldrei heimsmeistari þó hann sé ágætur sko. hann fór til útlanda og kom með heimsmeistaratitil í vasanum. sem þjálfari en það skiptir ekki... aldrei að segja neitt svona arnar. skamm.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Ó missti ég af döðlubrauðinu og pönnsunum. Það var ekki verið að kalla á mann!!!

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 13.11.2007 kl. 17:17

2 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Það er nú ekkert slor að heita Arnar....? Kveðja að vestan, Ylfamist

Ylfa Mist Helgadóttir, 13.11.2007 kl. 21:57

3 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Hvað!  Senda yfirmenn á skáknámskeið. 

Marinó Már Marinósson, 14.11.2007 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband