Guðbjargar/Þórdísarmótið og krísuvíkurleiðin

laugardagur: óvissuferð með máli og menningu. rúta og bjór.

skoðuðum beisinn. sem heitir keilir. fengum donuts. og instant kaffi. svo virkjunina að svartsengi. fengum ekki baun. fórum að reykjanesvita, rúlluðum krísuvíkurleiðina og fengum súpu á hafinu bláa. ekkert leiðinlegt sko enda góðmennt.

bjarki las upp úr nokkrum jólabókum og sló í gegn. á meðan ég sötraði campari.

sunnudagurinn ekki hress, þannig sko. var í vin í tvo tíma og svo í máli og menningu í sex tíma og skúraði svo í vin fram að miðnætti. sem þýðir að mánudagurinn var svolítið lúinn til að byrja með. en eldaði samt grænmetissúpu, kraftmikla til að mæta íslenska haustinu og allir hresstust. ég líka. tuttugu manns átu þannig að potturinn var stór.

svo var guðbjargar/þórdísarmótið í skák. ekki nema sjö þátttakendur en stórskemmtilegt. guðbjörg var semsagt að hætta sem yfirmaður minn og þórdís tók við. þeim til heiðurs. þær fengu líka vinninga. og daníel sem var með kaffið líka og björg sem bakaði döðlubrauð líka. jebbs, björn sölvi vann enda fyrrum reykjavíkurmeistari í skák. var bara nokkuð kúl sko. ekki afleitt. aldeilis ekki.

á morgun er þriðjudagur. hvað hann ber í skauti sínu hef ég ekki hugmynd um. ekki enn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Það voru hamingjusamir skákáhugamenn sem komu á Kleppinn seinnipartinn i dag eftir vel  heppnaða heimsókn í Vin...... það liggur við að manni sé farið að langa að læra mannganginn......en en...skákklúbburinn í Vin....... allgjör snilld

Fanney Björg Karlsdóttir, 12.11.2007 kl. 20:04

2 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

ég veit hvað ég ber í skauti mínu..

Guðríður Pétursdóttir, 13.11.2007 kl. 00:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband