norðnorðwestur

 

sumarfríið hefur verið bissí í planeringu fyrir grænland. á góðmennum fundi í kvöld kom í ljós að þetta verða væntanlega þrjátíuogníu manns, karlar, konur og börn sem æða westur í hollum.

ísmaðurinn ógurlegi, sá hinn sami og drap hákarlinn með berum höndum hér um árið og á alltaf ísbjarnarkjöt handa svöngum möllum, siglir með hópinn frá kulusuk til tasiilaq, nú eða kuummiit og svo aftur til baka, gegnum ísbreiðuna. klirr klirr og brestir í bát. en veðbjóðslega gaman maður ha...

 

hann segir andskotans og helvíts og djöfulsins í hverri setningu. öll þessi orð. "góðan daginn... andskotans maður he he" snillingur.

skákíþróttafélag háskólans í reykjavík ætlar að ættleiða kulusuk og skákvæða þorpið. hinir hafnfirsku kátu biskupar hafa þegar ættleitt kuummiit og verða þar. eitthvað. jón óskar verður með myndlistarsýningu. fullt af barnaskákmótum og svo flugfélagsmótið helgina 18-19. ágúst. hundrað manns takk fyrir og ég ætla að verða fyrir ofan miðju. það er markmiðið.

atli viðar félagi minn hjá rauða krossinum hefur meldað sig með. líst vel á það og andri bróðir hans er hirðljósmyndari í ferðinni. fullt af góðu fólki. held bara ekkert af slæmu fólki. algjör snilld.

annars er það akureyri strax á morgun. með piltana. halló akureyri. verður kúl. allavega rigning. sjóstöng með pabba. svo veiði í ólafsfjarðará í heilan dag. heimsóknir um víðan völl. dvd og chill. sund og grill.  heim að þvo brækur og sokka og beint til grænlands.

sjitt hvað þetta á eftir að vera tjúllað frí. en ógeðslega næs sko.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

vá, pakkað sumarfrí... Hafið það gott þarna á akureyrinni.. oj ég öfunda ykkur að vera að fara að veiða, ég er samt meira bara fyrir að veiða á bryggju og bara í skamman tíma í senn.. er ekki það þolinmóð, held ég

allavega have fun

Guðríður Pétursdóttir, 3.8.2007 kl. 08:55

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ógisslega góða ferð.  

Anna Einarsdóttir, 3.8.2007 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband