fimmtíu punda fiskilínan

 

dexter20"ég settist upp í aftursætinu og smeygði snörunni um hálsinn á honum. einn snöggur, sleipur, þéttingsfastur rykkur og fimmtíu punda fiskilínan hertist að. hann hrökk lítið eitt við af hræðslu og það var allt og sumt. þú ert á mínu valdi núna, sagði ég."

ekkert skrýtið að maður hafi fílað þættina með dexter. vona að það verði fleiri. yndislegt bara. er með bókina og ætla að lufsast til að lesa hana bráðum, kannski bara í fríinu  þó haugur af öðrum bókum bíði eftir mér hérna heima líka.

því eins og segir á bókarkápu: dexter hefur í rauninni flest það til að bera sem prýða má einn mann; hann er myndarlegur, ástríkur, fyndinn, hjálpsamur, barnslegur og hreint ótrúlega snjall (sjitt, bara eins og það sé verið að lýsa mér ha). En í honum lúra hin myrkustu öfl og þau knýja hann hvað eftir annað til hrottafenginna og miskunnarlausra morða..... úúhúu..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já..... þetta er alltaf spurning hvort maður geti lifað með göllunum ? 

Anna Einarsdóttir, 26.7.2007 kl. 19:28

2 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

hounm tekst það ágætlega

Guðríður Pétursdóttir, 26.7.2007 kl. 23:00

3 Smámynd: arnar valgeirsson

en hverjir eru gallarnir? að vera svona barnslegur?? ekki allar sem fíla það sko... varla galli að vera svona ótrúlega snjallir og myndarlegir eins og við dexter ha...

arnar valgeirsson, 27.7.2007 kl. 01:30

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Nei, Arnljótur - ef það ætti að lýsa þér hljómaði það væntanlega eitthvað eins og "lítill, ljótur, gamall, asnalegur og kommúnískur með heiftarlega hvirfilþynningu og andremmu Satans". Svo drepur Dexter fólk almennilega, með hvíf eða öxi, en þú reynir bara að drepa mann úr leiðindum ef þú ert ekki að lemja börn til ólífis (sjá klukk).

:)

Ingvar Valgeirsson, 27.7.2007 kl. 10:22

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Mér finnst hrottafengin morð teljast til galla, hmmmm.   En kannski er ég bara neikvæð ?

Anna Einarsdóttir, 27.7.2007 kl. 12:51

6 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Fer svolítið eftir fórnarlambinu - ef einhver pönnusteikir Geir Ólafs til ólífis er það ekki galli.

Ingvar Valgeirsson, 27.7.2007 kl. 17:50

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

  Þú ert með munninn fyrir neðan nefið.  Reyndar þekki ég ekki nokkra sálu sem er með nefið fyrir neðan munninn.

Anna Einarsdóttir, 27.7.2007 kl. 18:28

8 Smámynd: arnar valgeirsson

þetta kallast kjaftur, svona eins og á öðrum skepnum. og trýni. en kannski maður fari og kíkji á litlu bróðurómynd spila í kvöld, og syngja með kjaftinum sínum. bölvuð sjálfstæðisómyndin. en hann kann að spila á gítar og.... ja, hann kann að spila á gítar!

arnar valgeirsson, 27.7.2007 kl. 19:40

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Kann hann þá á tvo gítara ?

Anna Einarsdóttir, 27.7.2007 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband