í dag er 24. júli. datt svona í hug, þar sem ég er að fara að undirbúa allskyns hátíðarhöld í tilefni alþjóðlegs geðheilbrigðisdags sem er reyndar í október, og reyndar ásamt fullt af fólki, að vincent van gogh, hinn litríki gaukur, lést einmitt í lok júlí. jebbs. 29. júlí fyrir nokkrum árum. 1890.
skrifaði einmitt grein um hann og setti á kistuna eða kistan.is tvö þúsund og fjögur og jebbs, í tilefni alþjóðlegs geðheilbrigðisdags. nú, sjálfum finnst mér þetta tímabíl í listasögunni alveg magnað, fyrst impressionisminn og svo expressionismi, kannski vegna þess að ég ligg kylliflatur fyrir afríkanskri list, grímum og þeirri mögnuðu tjáningu sem býr í afríkumönnum þegar þeir taka sig til.
þetta uppgötvuðu dúddar eins og picasso og haugur af liði um aldamótin 1900 þegar afríkönsk list þótti bara skítug og ljót. en varð allt í einu alveg hipp og kúl.
"theo, ég ráðlegg þér eindregið að byrja að reykja pípu; það er góð hjálp gegn þunglyndi, sem reyndar hefur verið að hrjá mig annað veifið að undanförnu skrifaði vincent van gogh í einu af þeim 650 bréfum sem hann sendi til bróður síns, theodorusar. Alls varðveittust um 800 bréf hans, til ættingja og vina, en þó aðeins fjögur sem vincent fékk send. þessi bréf eru mögnuð, ótrúlega einlæg og skín í gegn bæði fátækt og þjáning piltsins.
arles, 22. janúar 1889.
gauguin, minn kæri vinur.
takk fyrir bréfið. skilinn eftir einn um borð í litla gula húsinu mínu sennilega var það hvort eð er skylda mín að fara síðastur frá borði - en er þó ekki lítið fúll yfir að vinur minn skyldi fara...
...ó, kæri vinur, að ná fram í málverki því sem tónlist berlioz og wagner hefur gert...list sem getur huggað brostin hjörtu. Já, það eru aðeins örfáir sem skilja þetta á sama hátt og þú og ég gerum!!!
...í sambandi við geðveilu mína eða taugaveiklun ég veit ekki alveg hvernig komast skal að orði með það hugur minn hefur ferðast um víðan völl að undanförnu...
ég verð að vara þig við að menn munu segja að ég vinni myndirnar mínar alltof hratt.
ekki trúa orði sem þeir segja... van gogh í einu bréfanna til theo bróður síns. auk þess að rissa og skissa málaði hann oft á tíðum eitt verk á dag svo mánuðum skipti.
sjálfur á ég haug af litum, olíu, akríl, vatnsliti og ég veit ekki hvað. einnig borðtrönur og fullorðinströnur. pensla í tugatali og helling af striga. en hef ekki málað mynd síðan í apríl. plebbi.
æi, erum við ekki öll svolítið speisuð. nema kannski ingvar litli bróðir....
hann er snarkreisí. enda repúblikani.
greinin er annars hérna sko:
http://www.kistan.is/Default.asp?Sid_Id=28000&tre_rod=005|&tId=2&FRE_ID=40055&Meira=1
Flokkur: Bloggar | 24.7.2007 | 17:59 (breytt kl. 18:04) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
malacai
-
annaeinars
-
atliar
-
aua
-
ormurormur
-
asdisran
-
astasoffia
-
birgitta
-
bjb
-
gattin
-
baenamaer
-
bestfyrir
-
tilfinningar
-
borkurgunnarsson
-
einarolafsson
-
eirikurbriem
-
ma
-
fanneybk
-
arnaeinars
-
vglilja
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
gunnarb
-
gunz
-
hoax
-
nesirokk
-
veravakandi
-
heida
-
rattati
-
hemba
-
hilmir
-
kht
-
disdis
-
hlynurh
-
don
-
ghostdog
-
tru
-
jahernamig
-
ingvarvalgeirs
-
jevbmaack
-
jensgud
-
johannbj
-
jarnar
-
jon
-
lundi
-
lauola
-
meistarinn
-
marinomm
-
pala
-
peturorn
-
siggagudna
-
sigurdursig
-
snorris
-
ipanama
-
urkir
-
thoraasg
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaman að lesa þetta..... eða eins og þú segir "hipp og kúl".
Anna Einarsdóttir, 24.7.2007 kl. 18:13
já, mér finnst ég allt í einu rosa fróð... uuuhhh um þetta.
Ásta Soffía Ástþórsdóttir, 24.7.2007 kl. 21:22
Mig langar að sjá eitthvað sem þú hefur málað
Guðríður Pétursdóttir, 25.7.2007 kl. 21:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.