jebbs, ýmislegt í pípunum í skákinni sko. Hrannar kallinn stýrði krökkunum í salaskóla til heimsmeistaratitils í gær, hvorki meira né minna. hrikalega dugleg. þau eru dugleg sko, hann er duglegur... á morgun fer ég svo ásamt aldeilis ótrúlega fríðu föruneyti austur fyrir fjöllin og munum við hjálpa þeim í frelsingjanum, sem er skákklúbburinn að litla hrauni að setja upp veglegt sumarskákmót. væntanlega svona alþjóðlegt mót enda alþjóðavæðingin í nýbyggingum, álverum og fangelsum landsins.
hann tómas hermannsson, hinn geðfelldi akureyringur (allir svo næs að norðan sko) hjálpar okkur með vinninga fyrir alla, bækur og diska því hans yndislega útgáfa, BÆKUR, reyndar líka útgáfan SÖGUR, ætlar að styðja svo gott málefni. með í för eru forseti hróksins, hrafn jökulsson, viðskiptaráðherra sjálfur hann Björgvin g. sigurðsson, formaður hellis hann gunnar björnsson sem hægt er að klikka á hér til hliðar, björn þorfinns skákgúrú, svo kannski þau mummi og embla ásgeirsbörn en hún embla er nýráðinn yfirkokkur í grænlandsförinni ógurlegu í ágúst nk.
læt að öllum líkindum vita hvernig reisan gengur, svona þegar hún er búin. læt að öllum líkindum vita hvernig skákin gekk, nema það gangi ekki vel hjá arnari.... en svo er annað stórmót.
grænlandsmót verður haldið í vin, athvarfinu sem ég starfa i, á mánudaginn kl. 13:00. Myndir frá grænlandi þekja veggi, fánar á borðum og bara stemning. vonandi mæta sem flestir því allir fá vinning auðvitað, maður er nú búinn að læra að hafa það þannig því ekki komast allir á verðlaunapall hehe... og svo eru jú brilljant snilljant veitingar eftir mótið. Grænland er þvílíkt kúl og þangað fer vösk fimmtíu manna sveit í ágúst. jebbs...
kannski maður bjóði bara nýbökuðum heimsmeisturum ásamt þjálfara að mæta á mánudaginn og sjá til hvort þessir krakkar geti eitthvað...
vil samt sérstaklega óska honum hrannari baldurs þjálfara krakkanna til hamingju með að vera í heimsmeistaraliði - það má klikka á guttan hér til hliðar - en ég hafði einmitt nýverið sent honum glósu á bloggið að hann yrði aldrei heimsmeistari þó hann liti í bækur af og til. hann tók sig til, fór til útlanda i fylgd nokkurra unglinga undir fjórtán og varð heimsmeistari. gott hjá honum.
svartur á leik - eftir stefán mána....
jebbs, og myndin er tekin úr þyrlu yfir kulusuk. geggjaðir litir, hrikalegt land. allgjör snilld.
Flokkur: Bloggar | 19.7.2007 | 21:37 (breytt kl. 21:41) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
malacai
-
annaeinars
-
atliar
-
aua
-
ormurormur
-
asdisran
-
astasoffia
-
birgitta
-
bjb
-
gattin
-
baenamaer
-
bestfyrir
-
tilfinningar
-
borkurgunnarsson
-
einarolafsson
-
eirikurbriem
-
ma
-
fanneybk
-
arnaeinars
-
vglilja
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
gunnarb
-
gunz
-
hoax
-
nesirokk
-
veravakandi
-
heida
-
rattati
-
hemba
-
hilmir
-
kht
-
disdis
-
hlynurh
-
don
-
ghostdog
-
tru
-
jahernamig
-
ingvarvalgeirs
-
jevbmaack
-
jensgud
-
johannbj
-
jarnar
-
jon
-
lundi
-
lauola
-
meistarinn
-
marinomm
-
pala
-
peturorn
-
siggagudna
-
sigurdursig
-
snorris
-
ipanama
-
urkir
-
thoraasg
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
sjitt hvað ég var mikill klaufi. myndin alltof lítil ha...klikkið á hana því hún er sko flott. vibbaflott.
arnar valgeirsson, 19.7.2007 kl. 21:49
ógeðslegur klaufi
Guðríður Pétursdóttir, 19.7.2007 kl. 22:17
fokking hrikalega ógeðslegur vibbaklaufi sko
arnar valgeirsson, 19.7.2007 kl. 22:22
Ég læt vissulega börnin vita af þessu þegar ég hitti þau aftur á morgun. Annars komin heim eftir langa og góða ferð.
Takk fyrir að segja mér hvað ég gæti aldrei gert; annars hefði ég sjálfsagt varla fengið metnaðinn til að gera það :)
Hrannar Baldursson, 20.7.2007 kl. 01:16
glæsilegt að þú skyldir sjá færsluna, hrannar. já, ég mun senda þér og ykkur öllum boð um létt mót á mánudaginn á síðunni þinni nú um helgina. væri virkilega gaman að sjá ykkur heimsmeistarana í grænlandsþema... og velkominn heim.
arnar valgeirsson, 20.7.2007 kl. 01:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.