jebbs, vinkonur mínar... eða fyrrum vinkonur mínar.... linda ósk og little big lebowski klukkuðu mig hérna i beinni. Ég mun semsagt koma með eitthvað bull úr mínu lífi en sleppa öllu sem synir mínir, og þó sérstaklega mamma, mega alls ekki lesa. það mun þó allt koma fram í bókinni hvernig ég varð frægur og ógeðslega ríkur í seinni hálfleik, ævisögu minni sem ég byrja á um leið og ég verð ríkur. nú eða frægur.
eitt: axlarbraut jökul loga, son minn, þegar hann var tveggja. jebbs, vorum að vega salt og hann flaug eins og discovery no þrjú og lenti á öxl. grenjaði svakalega og ég fékk áfall. hann hefnir sín væntanlega þegar ég verð svona sjötíuogtveggja. en fyrirgefðu samt kæra barn..unglingur..gelgja. tvö: á erfitt með að henda dóti. er af safnarakynslóð eða ættbálk. bý í fjögurra herbergja íbúð og troðfullt af dóti. er með svona sextíu myndir á veggjum. þarf höll.þrjú: sá mann laminn með hafnarboltakylfu í hausinn og annan stunginn með hníf í kvið. þetta var í tijuana i mexico. við bjöggi félagi minn vorum þar eftir að hafa skannað júnætid steits uppúr og niðrúr. löggan gekk um með vélbyssur og þeir rændu okkur bévaðir. höfðu af okkur, ljóshærðum piltunum, fimmtíu dollars. bjöggi svo buffaður og við lufsuðumst heim, blankir og í henglum.
fjögur: þegar ég var ungur..yngri jebbs þessi með 60 cm sítt hár, flotta magavöðva og 10 kg léttari en nú, þótti ég nokkuð líkur axl rose. lítill töffari. var upp með mér þegar ég var kallaður axl hvað eftir annað í þessari téðu ameríkureisu. axl er ofsaflottur söngvari. ég kann ekki að syngja.
Fimm: er, eða var, einn allra harðasti aðdáandi gary numan hérlendis. heyrði cars í poppkorni eða skonrokki í gamla daga og fór að safna öllu, plakötum og svoleiðis og á einar 24 plötur með kappanum. var á akureyri um daginn og fór á rómaðan skemmtistað, vélsmiðjuna. þrír þar inni kölluðu mig numan og mér leið ofsavel.

hætti í vélskóla þegar ég var sautján. næstu fimm ár vann ég á svona þrjátíu vinnustöðum, í fiski eða sjó og ruslakall reyndar líka. grindavík, grundafjörður, vestmannaeyjar, færeyjar, bolungarvík, flateyri, hrísey, höfn, siglufjörður og ég man ekki hvað. stabílli nú. fór í skóla á gamalsaldri, hönnunarbraut og fékk bók og viðurkenningarskjöl því ég er svo klár. Varð ofsaglaður yfir að sellurnar virkuðu enn svona vel. báðar.
sjö: við kristján besti vinur minn ákváðum að detta i það kornungir. horfðum lengi vel á smirnoffflöskuna og pældum í hvað við ættum að vera lengi með þetta glundur. ákváðum korter. stjáni kláraði á 7 mínútum sinn helming og ég á tólf. fórum í dynheima á akureyri og keyrðir heim fljótlega.... ákváðum síðar að gefa okkur betri tíma. drukkum smirnoffið í canada dry á meðan áramótaskaupið var. áramótin voru sko ekkert grín.

átta: meiddi ingvar litla bróður þegar hann var svona fjögurra eða eitthvað... meiddi hann sosum oft en þetta var slæmt. skellti saman á honum skoltinum í einhverjum leik og hann beit næstum í sundur tunguna. mamma var ekki glöð og ég var skömmustulegur. ingvar grenjaði heilan dag. fyrirgefðu ingvar.
níu: átti íslandsmet í maraþondiskodansi sextán eða sautján vetra. vorum fjögur sem vorum eftir, af 83, þegar læknir stoppaði dansinn. tuttuguogfimmtímar... stanslaust. var dæmdur i fjórða sæti! fór heim og í bað. læsti ekki sem betur fer því mamma dró mig upp þegar hún heyrði blubb blubb og ég sofandi í kafi.
tíu: var í stórhljómsveitinni bónus bandið á flateyri fyrir nokkrum árum. duldið mörgum nokkrum árum. spiluðum um víðan völl og vorum hrikalegir. ég á hljómborð. roland júnó 106. seldi það. algjör kjáni. átti svo kassagítar. seldi hann. algjör kjáni. átti svo gibson sg, vínrauðan sextíu og sjö módel sem var eins og angus young AC/DC á. ingvar seldi hann. algjör kjáni.
ellefu: átti nótulaus viðskipti við hrannar björn arnarsson sem komst ekki á þing eitt sinn því hann var grunaður um fjármálaeitthvað. nú er hann aðstoðarmaður jóhönnu því hennar tími er kominn. við díluðum með kanínur þegar við vorum svona tólf.
tólf: veiddi þriðja stærsta þorsk við íslandsstrendur þegar ég var á rækjutogaranum sólrún ís 1. fimmtíuogsex kíló. útgerðin rændi gripnum. framkvæmdastjóri var einar k. guðfinnsson, nú sjávarútvegsráðherra. rændi af mér þorski. sjitt.
svo: er ekkert afleitur kokkur. hugfanginn af grænlandi. á tvo frábæra syni, jökul loga og atla sem eru sosum engar fréttir, ha.
klukka ekki nokkurn mann. þetta var samt ágætis æfing fyrir ævisöguna ha.
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
malacai
-
annaeinars
-
atliar
-
aua
-
ormurormur
-
asdisran
-
astasoffia
-
birgitta
-
bjb
-
gattin
-
baenamaer
-
bestfyrir
-
tilfinningar
-
borkurgunnarsson
-
einarolafsson
-
eirikurbriem
-
ma
-
fanneybk
-
arnaeinars
-
vglilja
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
gunnarb
-
gunz
-
hoax
-
nesirokk
-
veravakandi
-
heida
-
rattati
-
hemba
-
hilmir
-
kht
-
disdis
-
hlynurh
-
don
-
ghostdog
-
tru
-
jahernamig
-
ingvarvalgeirs
-
jevbmaack
-
jensgud
-
johannbj
-
jarnar
-
jon
-
lundi
-
lauola
-
meistarinn
-
marinomm
-
pala
-
peturorn
-
siggagudna
-
sigurdursig
-
snorris
-
ipanama
-
urkir
-
thoraasg
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
fín æfing.... skemmtilegt að lesa..
hversu stabílli ertu nú, mér finnst á blogginu þínu að þú sért ekkert mikið heima hjá þér,alltaf úti um allt
Guðríður Pétursdóttir, 16.7.2007 kl. 23:19
Ágætiskokkur mæ ess - mannhelvítið kann ekkert að elda nema pasta með pylsum. Svo er hann glataður í maraþondiskódansi, því ég bættiþremur tímum við Íslandsmetið hans nokkrum vetrum seinna. Þar með er komið eitthvað í klukkið mitt part II.
Ingvar Valgeirsson, 17.7.2007 kl. 00:18
en elsku litla bróðurómynd. ekki vera svona reiður. lastu þetta ekki. ég sagði fyrirgefðu..........
elda stundum fyrir tuttugu manns. er snilli.
arnar valgeirsson, 17.7.2007 kl. 00:27
Ég man reyndar ekki eftir þessu tiltekna atriði, en ég verð víst að fyrirgefa þér, því annars kemst ég ekki til himnaríkis.
Það fyrsta sem ég man úr æsku var þegar ég skreið út um gluggann. Á fjórðu hæð. Þegar ég hugsa út í það elska ég mömmu mína enn meira fyrir að draga mig inn á hárinu áður en ég datt alla leið út. Svo man ég þegar þú stalst Picnic-dósinni minni, en það er líka fyrirgefið alltsaman, enda ertu fínn kall.
Ingvar Valgeirsson, 17.7.2007 kl. 01:01
aaawww look at you two...
Guðríður Pétursdóttir, 17.7.2007 kl. 01:06
ég man sko alltaf eftir þessu atriði ingveldur. þetta var í toyota bifreið föður okkar og það var svona gúmmíapi sem hékk á speglinum. man betur eftir honum en bílnum. var eins og almannavarnir ríkisins væru með æfingu, svo hátt heyrðist í ingó litla.
svo hef ég ekki stolið neinu af þér. hvorki picnic né neinu öðru. bara aldrei stolið....
arnar valgeirsson, 17.7.2007 kl. 01:12
Viðbót við atriði númer fimm...átti hroðalega flottan jakka (í minningunni er hann hermannagrænn) með handteiknaðri mynd af Gary Numan á bakinu. Kannski skjöplast mér (svona eins og með litinn), en mér finnst einhvern eins og myndin hafi verið í ætt við umslagsmyndina á Telekon.
Það vottast hér með að Numan-nafnið loðir enn...mjög þægilegt til skilgreiningar og skýringar í daglegu tali norðanpilta.
Það má heldur ekki gleyma því að Gary Numan er fjandi merkilegur náungi sem hafði mikil og góð áhrif á tónlistarsveiflur síns tíma. Það hefur gerst að ég hef leikið lög hans í útvarpinu við góðar undirtektir.
Snorri Sturluson, 17.7.2007 kl. 01:46
gaman að sjá þig snorri. þetta var svona ljósgrænn jakki, eða úlpa, þar sem ég tússaði akkúrat þessa mynd hér að ofan og í stað tubeway army stóð stórum stöfum numan. sakna hans enn. kallinn hefur nú reyndar enn þann dag i dag áhrif á tónlistina, nefni bara sugababes... en gaman að fólk muni eftir þessu og endilega spila meira numan sko.... meira meira. og áfram Leeds
arnar valgeirsson, 17.7.2007 kl. 10:51
en hey, hvor drengjanna þinna á heima á stokkseyrinni ef ég má forvitnast
, bróðir minn er 12 ára og þekkir hann kannski
ég verð ekkert sár ef þú vilt ekki segja mér það, ég kemst að því samt sem áður
Guðríður Pétursdóttir, 17.7.2007 kl. 10:56
takk fyrir að deila þessu með okkur
vona samt að það verði ekki stríð á milli ykkar bræðrana við þetta
Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 12:36
en hvað kom fyrir allt hárið ?????
Fanney Björg Karlsdóttir, 17.7.2007 kl. 14:46
Þetta er með því besta sem ég hef lesið af öllum þessum "klukkum"! HAHAHA ... en sem betur fer ertu kominn með á prent að bróðurómynd þín sé búinn að fyrirgefa þér! Ekki er vanþörf á fyrir sjalla eins og hann, enda eru þeir allir með minni á við gullfisk ! En takk fyrir frábæra grein!
Guðsteinn Haukur Barkarson, 17.7.2007 kl. 16:39
fanney: ég seldi hárið. líka magavöðvana. fyrir 10 aukakíló. hárið kemur aldrei aftur, ekki svona mikið allavega. magavöðvarnir koma í haust. en kílóin fara ekki hvað sem ég geri. múta þeim með bjór. súkkulaði... alltaf hanga þau þarna.
takk fyrir hlý orð, haukur skámágur.
arnar valgeirsson, 17.7.2007 kl. 19:39
Skemmtileg lesning.
En er þetta samt ekki mynd af Axel Rose sem þú settir þarna inn? Ég verð að viðurkenna að líklega man ég ekki hvernig þú leist út svona langt aftur... Fyrir tíma Guns and Roses... Mig rámar jú í að þú hafir verið með sítt hár, en var það ekki ljóst?
Bryndís Böðvarsdóttir, 18.7.2007 kl. 00:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.