hótel ljótel

Sá í fréttablaðinu í dag að eignarhaldsfélagið Kaupangur hyggst reisa 50-55 herbergja hótel þar sem húsin að Laugavegi 4 og 6 eru nú.Ég er nú alls ekkert hlynntur þessum niðurrifum í miðbænum og finnst að yfirvöld, eða þeir sem hafa keypt upp allt miðbæjargalleríið og stjórna yfirvöldum með völdum og frekju, ættu að slappa svolítið af við þetta - kommon, muniði eftir baráttunni um grjótaþorpið, ha - en skal lúffa með það að hús sem eru bæði ljót og ónýt og hafa ekki merkilega sögu megi fara. Þó ekki líkt því svona mörg.Það sem ég er fúll yfir er að eitt flottasta húsið í miðbænum sést ekki lengur þegar þessi hótelómynd er mætt á svæðið en það er neðst á Skólavörðustígnum, sennilega númer þrjú eða fimm til eitthvað og hýsir held ég núna úrsmið, listagallerí og fleira, m.a. íbúðir. Þetta hús hefur nánast öll form sem finnast og ef þið trillið niður Laugaveginn og horfið yfir húsin no 4 og 6, líka á þau því nú á að rífa þessar dúllur....... má sjá þessa snilld.Sést reyndar í bygginguna á myndinni sem fylgir fréttinni.

Vil bara benda fólki á að kíkja á húsin þegar það labbar Laugaveginn, nú og vesturbæinn svona til dæmis, því það eru flottar byggingar út um allt. T.d. húsið sem verslun Guðsteins er í og mange mange fleiri.

 Svo er snilldar krot á gamla MÍR húsinu við Vatnsstíg. “ætlarðu að rífa mig”? Það er búið að klukka mig bak og fyrir. Er ekki glaður en svara því um helgina. Flyt til Kuala Lumpur á mánudaginn!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

hey ég skal aldrei klukka þig aftur, að er óþarfi að  fara í fýlu og flytja til kuala lumpur

Guðríður Pétursdóttir, 13.7.2007 kl. 21:38

2 identicon

Hey, hey, ég skal sko heldur aldrei klukka þig aftir  held samt að Grænland henti þér betur ef þú á annað borð ætlar á flótta undan klukki

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 14.7.2007 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband