pi

hitti ungan mann í gær sem heitir pi. hann heitir reyndar eitthvað miklu meira en er kallaður pi. vinkona hans var með honum og hún heitir hin. þau eru frá taiwan og hann var að vinna hér á sólheimum en er á heimleið.

það búa 23 milljónir manna i taiwan. landið er þrisvar sinnum minna en ísland. miðað við það gætu búið hér léttilega 69 milljónir. ef helmingurinn væri í reykjavík, eins og nú væru hér næstum 35 millur. enda sagði pi að þegar hann færi á macdonalds eða starbucks (jebb, þetta er auðvitað allt komið þarna) þá settist fólk bara þar sem hægt var og hann snæddi oft með einhverjum sem hann þekkti ekki baun. og það er ekkert grín að fara í kringluna þar. maður bíður bara i klukkutíma eftir að einhver lufsast úr stæðinu og vabúmm.. stingur sér þangað.

búðir eru opnar þar frá sex á morgnana og til ellefu á kvöldin. sumar yfir nóttina. það er kannski 15-20% fólks sem vinnur á nóttunni. vill geta skotist út í búð að kaupa sér núðlur. eða jafnvel skó.

pi var kokkur í taiwanska hernum. eldaði fyrir 200 manna lið. hrærði í pottum og pönnum sem voru ekkert svona venjulegt eldhúsdæmi. hann og vinkona hans komu í vin í dag, vinnustað minn, og elduðu kínverkst..eða svona taiwanskt.. hrikalega gott. alveg ógeðslega gott. ekki fyrir tvöhundruð, samt fyrir tuttuguogfimm.

svo langar mig til tapei, nú eða taipei eða hvernig sem það er skrifað. höfuðborgar taiwans og þar vil ég læra kínversku. oh hvað mig langar að læra kínversku.

en á morgun fer ég í borgarfjörðinn. að læra eitthvað um víkinga og sveitirnar þar. borgarnesdeild rauða krossins býður mér í mat og reyndar miklu fleirum. þetta verður kúl. ekki samt eins kúl og taiwan og kínverska.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

but the next best thing

Guðríður Pétursdóttir, 10.7.2007 kl. 21:30

2 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Pi og Hin og Teresa voru frábær í dag. Maturinn indæll og bragðgóður. Frábær þessi alþjóðavinkill á Vin.

Ha en ætlarðu ekki að borða með Víðsýn á morgun? Eða er eitthvað sem ég ekki veit um......

Sjáumst í fyrramálið

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 10.7.2007 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband