giftingarhringurinn

Unga fallega ekkjan, Emily Pierce, hafði verið ástfangin en misst allt á einu augnabliki. Hún var ákveðin í að giftast aldrei aftur, þar til öryggi ófædds barns hennar var ógnað. Þá játaðist hún yfirmanni sínum.

Þegar Matt Tompson giftist Emily táknaði það annað tækifæri í því hlutverki sem hann hélt að væri sér glatað að eilífu. Eiginmaður. Faðir. Og þó...Þau höfðu gert samkomulag um hjónaband að nafninu til. Í bili...En voru sumir samningar ekki til að brjóta þá?´´

áskotnaðist þessi glimrandi bók úr rauðu ástarseríunum. hún heitir giftingarhringurinn. fékk reyndar tvær í viðbót, hættuspil og staðgengillinn. er búinn að lesa - aftaná - þær allar. snilld... bara ekki spyrja hversvegna ég alltíeinu á þrjá svona gullmola!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

staðgengillinn hljómar meira spennó 

lestu aftan þá bók

Guðríður Pétursdóttir, 9.7.2007 kl. 17:10

2 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

vissi ekki að þú værir svona rómantískt þenkjandi..... kemur stöðugt á óvart Arnar....

Fanney Björg Karlsdóttir, 9.7.2007 kl. 17:13

3 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Já nú er ég alveg orðin sannfærð. Þú þolir ekki svona gott sumarfrí ert orðinn afvegaleiddur á hinn ýmsa máta.

Farðu að mæta í vinnuna elskan til að rétta áttavitann

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 9.7.2007 kl. 18:17

4 identicon

Hahaha, þú kemur sífellt á óvart.....hver veit nema ég eigi æskuástina, leynivininn eða hjartaknúsarann að lána þér

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 19:25

5 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ég las eitt sinn bókina "Vaselín og villtar nætur", sem fjallaði um sjálfmenntaðan endaþarmslækni og vini hans... eða, sko, ég las hana ekki beint, en skoðaði myndirnar. Arnar lánaði mér hana, en hann átti allt safnið, áritað af höfundi.

Ingvar Valgeirsson, 9.7.2007 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband