hefði getað klikkað á fréttir á mbl.is til að ræða frekar, eins og t.d. "fylgi við samfylkingu og ríkisstjórn minnkar".
líka "leeds fær ekki 15 stigin tilbaka". sem er leitt því fyrst voru tekin af þeim tíu stig þegar þeir voru að falla í fyrra og svo aftur fimmtán þegar þeir byrjuðu sl haust. svindl og svínarí en þeir hafa staðið sig vel samt.
svo verð ég að tilkynna það að á sumardaginn fyrsta komu hér við hjá mér ingveldur litla systir og sonur hennar hann stefán örn. þar sem ég geng undir nafninu arnljótur hjá ingveldi og co, einhverra hluta vegna, þá var ákveðið að á sumardaginn fyrsta héti ég arnflottur.
líkaði vel en sumardagurinn fyrsti var víst bara einn dagur sko. kallaði líka ingveldi ingvar, svona upp á djókið og í tilefni dagsins....
en, það er sko fyrsti mai og ég skrapp í bæ og hitti mann og annan, konur og aðra... kaffi hjá vinstri grænum sem var gaman og í tilefni þess að það er fyrsti mai og líka þess að fylgi við samfylkingu og ríkisstjórn minnkar, þá set ég hér kvæði eftir meistara helga hóseason, sem fílar ekki ríkisstjórnina og birtist á visir.is í dag. hann er flottastur...
Brennið þið kyrkjur, oní svarta
sanda,
saman við mold og leir á
klöppunum;
Landsfeðra draugsa, hórdólg,
helgan anda,
hengið þið krosslaf
upp á löppunum.
Bloggar | 1.5.2008 | 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fór á aðalfund kalak, vinafélags íslands og grænlands í kvöld.
og gettu hvort ég er kominn í stjórn eða ekki?
gettu þrisvar.
já, einmitt. ásamt góðu fólki. alveg rétt...
svo eru líka aðrar getraunir í gangi.
ein er hjáþessumdúd en þetta er leikaragetraun. hef ekki verið mjög fundvís á réttu nöfnin og gott ef það er ekki bara komið svar. en það koma alltaf nýjar getraunir þarna sko.
önnur er einmitthjáþessumdúd og er það tónlistargetraun. reyndar einnig myndagetraun. er sko ekki alveg að geta þetta enda drulluerfitt. hann er nokkuð fróður um tónlist og íþróttir.
það er að koma mæ. þá verður inga rún frænka þrítug. aftur.....
en þar sem ég var að minnast á kalak þá sýni ég hér mynd sem gefin var út á póstkorti og sýnir félaga minn dines mikaelsen, bæjarstjórason og útivistarmann, aðal hundasleðagæjann á austurströndinni og snjósleðagæja, veiðimann og altmuligman bara.
hann var einmitt hér um daginn að leika í auglýsingu.
þarna er hann að gera að sel sem hann var að veiða. flott mynd.
Bloggar | 30.4.2008 | 01:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
set nánast aldrei inn "blogga frétt" blogg. nema það varði almannahagsmuni og eigi erindi til alþjóðar. eða heimsins.
þessi gerir það.
þetta eru hetjur.
við erum ógeðslega góðir sko, byrjuðum í mínus fimmtán stigum.
"who gives a fuck, we´re going up" jesssss
![]() |
Leeds öruggt í aukakeppnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.4.2008 | 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
nú, þegar kastljósi lýkur, ætla akureyringar og kópavogsbúar að taka áðí í útsvarinu á ruv.
hef nú ekki séð marga þætti en maður er - eins og annar hver hér - nettur sökker fyrir spurningakeppnum og djö eigum við eftir að mauka kóparana.
maukaðá.
teknir í ósmurt.
jarðaðir.
niðurlægðir.
annars er ég góður. held það sé bara sófinn og tv í kvöld.
nema ég fari út og mótmæli. rauðvínið er orðið alltof helvíti dýrt.
Bloggar | 25.4.2008 | 19:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
stuttu áður en ég tók til við að steikja kjötbollur oní fullt af fólki í vin i dag - opið til átta sko - þá skruppum við nokkrir dúddar í ráðhúsið að sjá skemmtilega sýningu en fjallað er um hana og margt annað EINMITTHÉRNA
þarna var eitt málverk verðlagt á 400.000000 usd, jamm, fjögurhundruðmilljóndollara takk fyrir. það er eftir hann ásgeir bókaorm og listmálara í frístundum sem ætlar að borga efnahagshallann á landi hér á... ef einhver splæsir í myndina "stjáni blái" til að hafa fyrir ofan sófasettið.
skilst að næstdýrasta málverk heims hafi kostað um 160 millur, dollara sko, en það var víst jackson pollock. svo eru einhverjir sunnudagsmálarar seldir á aðeins minna. van gogh, degas, matisse og svoleiðis lið.
reyndar fór hópur á fleiri viðburði, en ekki ég. stóð yfir pottum og pönnum.
en ég man ekki hvort ég hef sett ÞENNAN link inn, sennilega einhverntíma, en aldrei er góð vísa of oft yrt...
svo endar pilturinn á aldeilis ljómandi fallegri mynd. ekki reyna að andmæla. hún er flott. drulluflott og tekin hér rétt fyrir norðan. eiginlega 800 km beint í norður takk fyrir. ekki af mér, heldur honum andra thorarensen, sem stóð þarna á þyrlupalli með tár í augum að kveðja þorpið sem hann elskar mest af öllu. svo var hann með sína fínu myndavél rétt fyrir framan tárin sko.
Bloggar | 24.4.2008 | 02:00 (breytt kl. 02:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
á meðan útskriftarnemar í hitlersbúningum mótmæltu einhverju í dag sem þeir vissu ekki hvað var, og horfðu á fólk slást, þá gengu aðrir útskriftarnemar um miðbæinn í typpabúningum.
það voru einhver þrjátíu typpi trillandi á laugaveginum og brosandi út að... já, brosandi bara.
og full. sum blindfull.
til hamingju með piparúðann. til hamingju með flutningabílana. til hamingju með útskriftina, þið drukknu ungmenni. framtíð íslands.
Bloggar | 23.4.2008 | 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
piltarnir voru hér um helgina og það var stuð, enda aukapiltur á ferð, þessi sem skírður var í hausinn á alex lifeson, gítarleikaranum í rush. hann er reyndar á sínum sautjánda vetri, barnið...
ógeðslega mikil tölva..... smá keila og púl, sýning hjá útskriftarnemum í listaháskólanum sem var á kjarvalsstöðum, tvær myndir á dvd o.s.fr. og svo skrapp ég reyndar einn og sér og í smærri hópum í geysishúsið þar sem hún guðný svava strandberg opnaði sýningu í gær. flott hjá henni.
endaði á því að við jökull sáum djísús kræst í borgarleikhúsinu í gærkvöldi og maður kom heim í nótt eftir rúnt austur yfir heiðar með barnið heim til sín.
bandið var flott og stóð sig vel. sviðsmynd einföld en nokkuð kúl og þetta var sko öðruvísi uppfærsla en þegar pétur jesú var jesú..... sem er ok. var samt ekkert imponeraður en jökli fannst gaman og það er gott. slatti af börnum og enn meira af unglingum reyndar.
mér fannst allavega vanta aðeins uppá að krummi og jenni væru að standa sig með prýði. og það sem vantaði aðallega, svona fyrir alla þessa nýju áhorfendur sem ekki þekkja söguna, var að fatta hver var hvað því það kom sko ekki berlega í ljós. enda ætlar jökull að sjá myndina með gillan sko.
en þetta var rokkað og byrjaði reyndar helvedde vel en missti pínu damp, svona fyrir minn smekk, en engu að síður ágætis kvöldstund, tala nú ekki um ef maður er með unga fólkið með.
svo má nú aldeilis geta þess að ég kom við í o.johnson og kaaber húsinu við sæbraut að skoða sýninguna hans einars hákonarsonar eftir vinnu í dag. skemmtilegt og flottasti sýningarstaður ever.
djöfull er ég listrænn þessa dagana ha.
Bloggar | 21.4.2008 | 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
"Það mun líklega almennt viðurkennt, að þær bætur og breytingar í þjóðfélagsskipan, stjórnháttum og þjóðlífi, sem Íslendingar hafa átt viða að búa hina síðari áratugi, hafi engan veginn komið af sjálfu sér, enga baráttu þurft né viðbúnað. Allar umbætur eru runnar frá baráttu."
Jamm, kjarnyrtur hann Páll Eggert Ólason sem ritar sögu Jóns Sigurðssonar, árið 1929. Mörg bindi en þetta er formálinn í því fyrsta. ekkert helvítis væl. Og hann heldur áfram:
"Mannlegu eðli er ísköpuð allrík fastheldni við þá aðbúð alla og skorður, sem venjur hafa tamið mönnum. Rætur þessarar fastheldni eru helzt þrenns konar: Hugleysi, tregða og kvíði. Hugleysi aftrar mönnum frá að rísa upp af kodda vanaværðar gegn ofurvaldi."
- heyr, heyr-
"Tregða hamlar þekkingu, þvi að jafnan er mikið erfiði í því fólgið að kynnast nýungum og breytingum, dæma rétt, velja og hafna. Kvíðinn mun þó ríkastur í mannlegu eðli. Menn þekkja það, er þeir eiga við að búa, en aldrei að fullu það, er við tekur, ef það er óreynt eða lítt reynt að öðrum."
- heyr, heyr-
og áfram heldur Páll, og lýsir Jóni sem nennti ekki að hanga með þrælslund endalaust og láta misviturt yfirvald leiða sig áfram, eins og 75% kjósenda hér gera nú áttatíu árum síðar:
"Í hugum flestra býr stuggur við ókennd efni. Þeir menn einir, sem ótrauðir eru og kvíðalausir, geta hrundið nokkuru áleiðis, og ef þeir eru framsýnir með forsjá, verða þeir sem vitar, er birtu bera, svo vítt, sem tekur ljósmagn þeirra. Það er gifta hvers þjóðfélags, að eiga sem flesta slíkra þegna."
Vel orðað hjá Páli og ég held svei mér þá að við eigum jafnvel framsýnt fólk með forsjá.
Lifi byltingin....
Bloggar | 19.4.2008 | 01:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
stelpa var að pína strák fyrir utan skólann. prestur trítlar hjá og lítill hnokki segir að hún sé alltaf að pína sig og hefur greinilega eitthvað á prestinn. því að presturinn segir: þú ert nú ljóti kúkurinn.
hann labbar að stelpunni og segir: veistu hver guð er? hann er svona eiginlega yfirmaður minn. guð segir mér að þú sért vond við þennan strák þarna og hann er mjög vonsvikinn útí þig. hann vill að þið verðið vinir. ef þú hættir ekki að pína hann þá muntu brenna í helvíti að eilífu.
og eilífð er mjög langur tími. ok?
labbar í burtu og stelpan horfir upp í loft og er greinilega að hugsa sinn gang.
æ, kom heim eftir fótbolta í kvöld og kveikti á sjónvarpinu. þá var þessi sena í gangi og þættirnir heita dirty sexy money.
ekki séð þá áður.
fannst þetta bara kúl. veit ekki um kalla sigurbjörns, en mér fannst það.
Bloggar | 18.4.2008 | 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
jamm, það er nú það.
Fullt af allskyns sýningum í gangi og ekki nóg með það þá eru tónleikar í lange baner.
Ingveldur litla systir spilar t.d. á döbbbblíners tvisvar í viku.
svo er dylan og whitesnake. líka dúndurfréttir og eigihaugs. og jet black joe með heilan gospelkór og siggu sem jafnast á við heilan gospelkór.
við jökull erum einmitt að fara á djísús kræst súperstjörnu á sunnudaginn. atli búinn að fara.
langar samt að vekja athygli á þessumviðburðum hér.
fullt að gerast og athvörf rauða krossins hafa tekið þátt í hinu og þessu, þó aðallega myndlist undanfarin ár.
svo byrjaði ný sería með spooks í gær á ruv. sjitt hvað maður liggur í sófanum næstu þriðjudagskvöld eftir sprikl í innanhúsboltanum. svei mér ef það er ekki bara einn lítill og sætur bjór á þriðjudögum ha.
svei mér.
Bloggar | 16.4.2008 | 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
malacai
-
annaeinars
-
atliar
-
aua
-
ormurormur
-
asdisran
-
astasoffia
-
birgitta
-
bjb
-
gattin
-
baenamaer
-
bestfyrir
-
tilfinningar
-
borkurgunnarsson
-
einarolafsson
-
eirikurbriem
-
ma
-
fanneybk
-
arnaeinars
-
vglilja
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
gunnarb
-
gunz
-
hoax
-
nesirokk
-
veravakandi
-
heida
-
rattati
-
hemba
-
hilmir
-
kht
-
disdis
-
hlynurh
-
don
-
ghostdog
-
tru
-
jahernamig
-
ingvarvalgeirs
-
jevbmaack
-
jensgud
-
johannbj
-
jarnar
-
jon
-
lundi
-
lauola
-
meistarinn
-
marinomm
-
pala
-
peturorn
-
siggagudna
-
sigurdursig
-
snorris
-
ipanama
-
urkir
-
thoraasg
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 1912
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar